sunnudagur, desember 11, 2005

Hung up on Mojito

Jæja. Nú er það orðið staðfest hvenær ég kem á klakann yfir jólin. Því hef ég ákveðið að boða til þessa blaðamannafundar. Ég veit að það brenna margar spurningar á vörum ykkar en ég vil vinsamlegast biðja ykkur að vera róleg og leyfa mér að lesa upp eftirfarandi yfirlýsingu:

"Ég, Hörður Logi Hafsteinsson kt. 261182-xxxx, mun koma til Íslands þann 21. desember með kvöldflugi Icelandair. Blómvendir eru vinsamlegast afþakkaðir en allar aðrar gjafir verða þegnar með þökkum. Búist er við svaka fjöri yfir hátíðarnar eða allt þangað til að ég flýg aftur til Lundaheima þann 3.janúar næst komandi. Þá er gert ráð fyrir að Ísland falli aftur í dvala sinn."

Eru einhverjar spurningar?

Allavegana. Nóg hefur verið að gerast í lífi lundans. Nokkur fyrirtæki hafa verið keypt, nokkrum klukkustundum eytt á vinnustað og örfáum klukkustundum eitt á börum og öðrum siðlausum stöðum.

Ég get hér með staðfest að Mojito er besti svaladrykkur sem ég fæ, mexíkanskur matur er sá besti í heimi (já Serranos ég er búinn að finna stað sem tekur þig í Mexíkanan) og Manchester United er skítalið sem er í mikilli lægð.

Ég og Andras vinnufélagi minn settum okkur það markmið að finna góðan mexíkóskan stað í Covent Garden um daginn. Því ákvaðum við að sigta tvo út á netinu og fara svo og eyða einni kvöldstund í "taste-out" á báðum stöðum. Cafe Pacifico og La Perla. Cafe Pacifico hafði vinninginn og hef ég farið tvisvar eftir þetta að fá mér að borða þar. Ég mæli með Mojito-unum þeirra, Pacifico bjórnum og svo Burrito Especial!

Lagið sem ég get ekki hætt að hlusta á þessa dagana er Hung Up með Madonnu. Afhverju? jú af því að mig langar að dilla rassinum mínum þegar ég heyri það. Góð útskýring þar á ferð. Gimme gimme gimme a man after midnight.......wait a minute! :-

Ég fékk um daginn sendingu frá Sigrúnu, download nördinu mínu á Íslandi með nýjasta nýtt af OC og Lost. Ég verð nú bara að segja alveg eins og er.....ég er hoooooooked á þessum tveimur seríum. Stundum eru þó helvíti mikil GÖT í plottinu í Lost en ég læt það nú ekki á mig fá. Mér finn OC vera soldið eins og Coldplay. Algert easy listening, bara góð melódía en engar djúpar pælingar bak við þetta allt saman. Svínvirkar fyrir vikið.

Lofa að fara bæta mig í bloggi.


Ég er lifebranded Criminal

fimmtudagur, nóvember 17, 2005

MIKE TYSON

Óargardýrið sjálft var í sömu skartgripaverslun í gær og Russell Crowe var um daginn. ÉG MISSTI AF HONUM!!! Var á námskeiði inni í City. GLATAÐ.

Respect, CUT!

mánudagur, nóvember 14, 2005

Bratwurst

Var á námskeiði í dag þar sem ég var að rifja upp eitt og annað samabandi við fjármál og verðmat. Á námskeiðinu með mér (samtals tíu manns) voru 7 þjóðverjar sem komu í þeim einum erindagjörðum til London til að sækja þetta námskeið. Er víst svaka þekkt námskeið í bankaheiminum og því ekki óalgengt að útlendingar sæki það. Allavegana. Ég var nánast í hláturskrampa í allan dag vegna þess að þjóðverjar sem eru ekkert alltof færir í ensku eða tala hana með miklum og þykkum hreim er eitthvað það fyndnasta sem ég veit um. Öll ESSSS verða alveg ssssshhhvakalega ýkt og svo hljóma þeir oft eins og þeir séu að fara að skæla.

Námskeiðið er haldið inni í City sem er aðal fjármála / bankahverfið í London. Ég aftur á móti starfa í Mayfair sem er rétt hjá Oxford Street. Munurinn á þessu tvennu er alveg svakalegur. Sér í lagi er það munurinn á byggingunum. Það er mjög greinilegt að sumar bankastofnanirnar eiga of mikinn pening og hætta að hugsa um nokkuð sem er rökrétt. ABN AMRO bankinn er til að mynda með held ég stærsta andyri sem ég hef séð. Það eru svona 25 hæðir til lofts í glerhýsinu sem er andyrið og þar inni er svona u.þ.b. 5% af rými nýtt til einhvers sem "meikar sens". En er að sjálfsögðu alveg ótrúlega flott og því það eina sem skiptir máli.

Djöfull er kalt í London!

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Ég vildi að ég væri rokkstjarna á áttunda áratugnum!

Á einhver tímavél? Er að horfa á myndina Almost Famous. Æðisleg mynd. Afhverju er ég ekki rokkstjarna í vinsælli hljómsveit. Kannski fyrir bestu. Held að ég myndi aldrei getað höndlað það.

Upplifaði skemmtileg móment í dag:

1) Var að rölta á Oxford Street að leita mér að einhverjum stað til að borða. Þar sá ég fjölskyldu. Móðir, faðir og tvö börn. Ekkert merkilegt nema það að móðirinn gekk að ruslatunnunni og ældi í hana. Skemmtilegt!

2) Var á heimleið, röltandi í áttina að Green Park með Mars Volta í botni í eyrunum. Heyri út undan mér einhvern segja: "Excuse me sir". Ég leit við og sá gamla konu sem virkaði alveg meinlaus þannig að ég tók headphone-in af mér og spurði hvað hún vildi. Þá byrjaði hún allt í einu að spyrja mig hvort ég gæti mögulega hjálpað sér. Ég var ekki sure og nennti ekki að standa í að þurfa að hjálpa of mikið. Ég svaraði því þannig að ég væri bara túristi og gæti eflaust ekki hjálpað henni mikið. Ég hélt sem sagt að hún væri að fara spyrja til vegar. En þá fór hún að tala um að hún væri heimilislaus. GARG....fer í taugarnar á mér. Ég sagði ..sorry...NO...og gekk í burtu. Veit það er harsh....en svona er lífið.

England vs. Argentina var í dag. Snilldar leikur!!! Ótrúlegt hvað hann Wayne Rooney virðist ætla að verða besti leikmaðurinn í heiminum. Allavegana...l8er.

föstudagur, nóvember 11, 2005

Röööössel Kró

Heil og sæl
Bara láta ykkur vita...ég hitti Russell Crowe í dag. Skemmtilegt nokk.

Annars skellti ég mér síðustu helgi upp til Manchester til að sjá besta leik ársins. Djöfull stóðu mínir menn sig vel!!!!

Ég, Skúli, Jón Bjarni, Jónas og Maggi fórum í lest á laugardeginum upp til Manchester þar sem við hittum fyrir þá Sigga og Börk. Við skelltum okkur með Jónasi afmælisbarni á spænskan veitingastað. Þar áttum við staðinn með íslenskum söngvum. Enduðum kvöldið á því að syngja allir sex eins hátt og við gátum íslenska lofsönginn! Það voru æðislegar viðtökur. :-)

Fyrir utan leikvanginn á sunnudeginum var margt um Íslendinginn. Lá við að maður heyrði íslensku hvar sem maður snéri sér. Ég hef aldrei upplifað svona mikla stemningu. Ótrúlegt en satt...lestin á leiðinni til baka var á réttum tíma. Ekki algengt hjá breskum lestum!

Allavegana...slökun þessa helgina og vinna. Gúdd stöff!

mánudagur, október 31, 2005

Djöst tú lett jú nó

Hef fengið mikið af kommentum til mín beint um málfar mitt á þessari síðu. Ég vil hér með biðja alla íslensku sérfræðing (MR-inga) afsökunar á slæmri meðferð minni á íslenskri tungu. Svar mitt til þessara aðila er að útlit síðunnar minnar lýsir held ég best hversu mikinn metnað ég legg í hana. Ég vil helst koma frá mér sem mestu á sem skemmstum tíma á sem skiljanlegastan hátt án þess þó að dvelja of lengi við hverja færslu. Þetta er víst engin afsökun en þetta er þó mín afsökun. Skal reyna að bæta mig en ég nenni því samt eiginlega ekki. Svo ég vitni nú í systur mína: Það að mæta of snemma á einhvern stað sem þú átt að mæta er tímasóun! Það að eyða meiri tíma í þessa síðu án þess að bæta neinu við skiljanleikan (ef svo má að orði komast) er tímasóun!

Allavegana....róleg helgi að baki. Man Utd. eru á rassgatinu sínu og ég er að fara horfa á þá á Old Trafford næstu helgi spila við Chel$ky. Mig langar nú helst að hætta við þetta....nei nei ég ætla að hafa trú á mínum mönnum!

Skilst að kuldinn sé að ganga frá fólki heima meðan hitinn helst að ég held + meginn við 10 gráðurnar þessa dagana hérna megin.

Meira öpdeit síðar.

fimmtudagur, október 27, 2005

Þetta er ný bloggfærsla

Ble ble

Er ekki kominn tími til að BLOGGA....Er ekki kominn tími til að BLOGGA? Blogga BloGGa BLOGGA......sá sem veit hvaða lag þetta er (tja með einhverju öðru orði en BLOGGA) vinsamlegast kommenti í kommentakerfinu!

Mikið hefur samt verið að gerast hjá mér eftir Íslandsförina sem heppnaðist með einsdæmum vel....að nokkrum atriðum undanskyldum. En að sjálfsögðu vildi ég að ég hefði náð að hitta fleira fólk og það fólk sem ég hitt oftar. Það verður þó að bíða fram að jólum. Hitti ykkur 24.des kl.18.00...it´s a date! :)

Vinnan er í gangi sem aldrei fyrr... en er að sama skapi alveg svakalega skemmtileg. Bloomberg er alltaf að verða meira og meira greiningartæki í mínum augum....ætla kannski ekki að fara út í það hér þar sem 1% lesenda eða minna (örugglega minna) þar af leiðandi ENGINN mun hafa gaman af þeirri umræðu.

Breskt sjónvarp er líklega leiðinlegra en íslenskt....FACT! Hef 5 stöðvar sem eru svona grunnpakki og er alvarlega farinn að íhuga að öppgreida í SKY Sports&Movies. Reyndar fær mar of mikið þá fyrir minna en stöð 2 kostar á mánuði ein og sér. En það er oft sem mar kemur heim og langar bara að leggjast upp í sófa og tjilla þangað til mar sofnar og þá vantar mig þetta. Ég tala nú ekki um þegar mig langar að horfa á enska boltann og sleppa þá við að fara á þessa pöbba þar sem allir reykja eins og þeim væri borgað fyrir það plús það að þeir væru human strompar og það væri arineldur í gangi inni í þeim svona í kringum mjaðmirnar.

Á fimmtudaginn síðasta (19 Oct held ég) skelltum við okkur nokkur úr vinnunni á opnun á nýrri búð í Convent Garden. Fyrirtækið hélt svaka partý eftir á í vöruskemmu fyrir 600 manns. Það var mjög gaman og alveg magnað hreint að ef maður kíkir eitthvað svona út með hópi af fólki þá hittiru svona 10 nýjar manneskjur í þeim hópi að minnsta kosti. En það þýðir að sjálfsögðu ekki að mar sakni ekki fólksins heima. En það er samt gott að sjá hvað það er auðvelt að kynnast mikið af nýju fólki hérna.

Yfir helgina voru svo Óli Johnson og Sigrún BETRI helmingur hans..hehehe... í heimsókn í borg Lundands. Við kíktum út að borða á skemmtilegan ítalskan stað (held að hann hafi verið ítalskur allavegana). Ég og Óli skelltum okkur í grillaðan lax en Sigrún í pasta í humarsósu. Vorum öll sammála um að rétturinn hennar Sigrúnar fékk vinninginn!!! Humarinn bara klikkar ekki...FACT!!!!

Sunnudeginum var svo eytt í verslunarleiðangri með Óla....fékk svo spurnir af því seinna að Ólafur Haukur Johnson ætlar aldrei aftur í verslunarferð með henni Sigrúnu! Óli minn....hún er nú ekkert verri en þú. Þú keyptir þér þrjá linguafóna!!! Beginners Chinese, France og Spanish! AAAAAAAAAAAAAAaaaaaaaaaaaaaaaasssssss you're gonna study that! Takk fyrir komuna! :)

Lundinn ófleygi hefur nú ákveðið að breyta ferðavenjum sínum í vinnuna. Ég áttaði mig nefnilega á því að með því að taka tube-ið á morgnanna get ég sofið allt að 10 mínútum lengur! Já gott fólk...það munar sko um 10 mínútur! Það er samt alveg ennþá æðislegra að fylgjast með fólkinu í tube-inu heldur en í strætóinum því ég tek tube-ið á Vauxhall. Til að komast í vinnuna fer ég út á Green Park. Þarna á milli eru tvær stöðvar, annars vegar Pimlico og hins vegar Victoria. Á Vauxhall þegar ég hoppa um borð er ekkert svo mikið af fólki, reyndar nær því sem klukkan er níu getur mar lent í röð upp að stiganum niður í tube-ið, svo á næstu stöð koma ekkert svaka margir um borð en á Victoriu mætti halda að um væri að ræða hóp af fólki sem hafi ekki fengið að borða í 4 ár og einhver væri að henda brauðmylsnu á gólfið um borð í lestinni. Þvílíkur æsingur að komast um borð. Síðasta fólkið sem kemst um borð þarf svo alltaf að setja hausinn til hliðar svo hurðinn geti lokast (tube-ið er shape-að nokkuð líkt flugvélarbúk). Allavegana, hef alltaf jafn gaman af því hvað fólk þarf að standa þétt saman því fólk verður svo vandræðalegt. Don't get me wrong....ég HATA að vera í þrengslum og sér í lagi þar sem ég er Icelandic Polar Bear þá er það ennþá verra, þá er líka gott að vera með iPod-inn sinn og með Diktuna sína alveg í botni. En maður sér samt alveg hvað öll karldýr eru alveg eins. Karlmaður og kona standa mjög þétt saman. Vísa bæði í átt að hvort öðru....hvert vísa augun á karlmanninum ...tja... 95% af tímanu....ég þarf ekki að mála þetta fyrir ykkur! Svo er það líka vana tube fólkið sem tekur það að sér að skipuleggja allt inni í tube-inu. Kallar upphátt alveg yfir alla....EXCUSE ME, WOULD YOU MIND MOVING FURTHER INTO THE TRAIN....þá er það sko að tala um gangveginn milli sætanna! AHA...eruði ekki alveg að sjá þetta fyrir ykkur?

Hvernig ætli það sé samt að vera starfsmaður þarna??? Jesús, í þessu ógeðslega lofti allan daginn. Einhver laumaði því að mér að ef þú prófar að snýta þér strax eftir að þú ert búinn að vera þarna niðri....ættiru að sjá hátt hlutfall af svörtu hori! Now that's a must try thing...right?

Allavegana....pabbi á afmæli á mánudaginn....enda er halloween þá. Ákvað fyrir tveimur mánuðum hvað ég ætlaði að gefa honum. Eins gott að hann eigi þetta ekki!!!!!

Í næstu viku á ég svo von á mikið af fólki. Tommi Aðalsteins kemur í byrjun næstu viku, svo og topp tíu Dóri, Gunnar Berg. Svo koma Zqli og Jón Bjarni á miðvikudaginn. ALLT AÐ GERAST! Ég Gunni Berg (sem er by the way að koma í þriðiju heimsóknina, já takið þetta til ykkar sem hafið ekki ennþá komið!!!!...ok ok kannski er hann hérna eitthvað vinnutengt...en það skittir ekki!) Zqli og JB erum að fara upp til Manchester á laugardeginum til að fara á Man Utd vs. Chelsea á sunnudeginum. Chelsea tapaði í gær fyrir Charlton (reyndar í vító) þannig að mar vonar að þeir séu að fara missa flugið aðeins!!!!!!!

Svo á ég afmæli 26.nóvember og byrja að taka við afmælisgjöfum í byrjun næstu viku.....takk fyrir og góða nótt!

sunnudagur, október 16, 2005

Jæja Öööööööpdeit

Skrapp til Íslands. Allt að gerast. Heilsaði upp á vini og vandamenn og skellti mér í brúðkaup sem Frikki Weiss var veislustjóri. Nokkuð magnað.

Brotherhood of Steel (Stálbræðravinafélagið) hélt stofnfund á föstudagskvöldinu. Það var æðislega gaman. Ölvun var æðisleg! Eftir gott partý var haldið í bæinn þar sem tjúttað var á Vegó.

Óska Áslaugu og Gabriel til hamingju með brúðkaupið og hrósa þeim á sama tíma fyrir skemmtilegasta brúðkaup sem ég hef farið í. Í stuttu máli....engin kirkjuathöfn heldur kampavín fyrir alla meðan vígslan átti sér stað. Góðar ræður þrátt fyrir að ræður hafi verið bannaðar fyrir veisluna. Tvær þeirra stóðu þó upp úr. Önnur var frá vini Gabriels honum Justin sem stóð hliðina á brúðhjónunum og lét þau hafa eftir sér ýmsa hluti. "I Áslaug promise you Gabriel to be a matchmaker for all your friends". Skemmtilegt það. Hin ræðan var ræða veislustjórans. Hann hafði heyrt að Gabriel væri mikill "the artist former known as Prince" aðdáandi þannig að ræðan var að öllu leyti samansett úr textabútum úr lögum hans. Hún endaði mjög skemmtilega á þeim orðum: "Now lets party like it's 1999". Eftir mikinn dans í brúðkaupinu var haldið á Vegó þar sem gott tjútt var tekið.

Mæli með The 40 year old virgin myndinni. Hún er æðislega fyndin og vitlaus!

Vikan hefur svo verið frekar róleg með mikilli vinnu og þreytu. Ég og Andri Björn kíktum samt á djammið með vinum hans á föstudaginn. Í staðinn var hann svo þunnur í gær að hann sveik mig með skvass í gær. Ég mun muna honum það. Fórum í staðin á A history of violence. Hún er aðeins og steikt en samt ágæt. David Cronenberg eða hvað sem hann heitir stendur fyrir sínu með sickleika.

Hvaaaaaaaaaaaað er að freta?

Já djöfull er kalt á Íslandi!

Að lokum...sögur af skrýtnu fólki í London:
1) Var á heimleið í gær og var mjög svangur. Kom við á einum stað að fá mér að borða. Á eftir mér í röðinni var maður sem var mikill aðdáandi fönks. Hann var með kassagítar og spilaði og söng hástöfum: "You can't stop the funk". Hann var líka í svona fönk outfit-ið....æji þið vitið hvað ég á við þeir sem vita hvað fönk er.
2) Var í leigubíl um daginn og bílstjórinn minn var hreint út sagt stórkostlegur. Hann sagði mér ævisöguna sína á innan við 5 mínútum. Hann fæddist í LA, flutti til NYC, bjó svo í Boston, flutti svo til London. Hann býr í úthverfi í London og var að kaupa sér landareign með stóru húsi á í Frakklandi til að geta farið þangað með fjölskylduna. Hann á næturklúbb í London.....OG HANN ER LEIGUBÍLSTJÓRI!!!!!!!! Ekki það að ég hafi eitthvað á móti leigubílstjórum...hann hljómaði bara eins og hann þyrfti ekkert að vera vinna við það.
3) Þessi er nú ekki skrýtinn en hann er fyndinn. Vinur Andra Björns hérna sem er með honum í skóla heitir Mustafa Butt. Must-have-a Butt. Mér finnst þetta ótrúlega fyndið!..Ekki segja honum það!

Æji kem með meira seinna

mánudagur, október 03, 2005

Ísland er land þitt....þú....þú ....þú

...allavegana....

Það er von á mér á Frónið næstkomandi fimmtudagskvöld!.....mar'að'eyra'ðað!!

Ýmislegt sem mar þarf og vill gera:
Kaffi með svölustu deild Íslands: Bókhaldsdeildinni hjá VÍS. Fá mér 15 SERRANOS. Köldmatur í faðmi fjölskyldunnar...var sko að panta spaghetti bolognese....sjá...ég tala bara um mat. Partý með meðlimum Brotherhood of Steel. Á laugardaginn brúðkaup hjá Áslaugu og Gabriel klukkan 17. Efast um að mikið meira verði gert þann dag.

Ég verð að biðja Nonna og Hjördísi afsökunar sem voru í heimsókn hérna í London/Cambridge fyrir þremur helgum síðan og ég gleymdi að geta þeirra í síðustu færslu. Biðst innilega afsökunar.

Er með ritstíflu....skrifa meira síðar. :)

sunnudagur, september 25, 2005

del Horno og Vialli....my best friends

Fór á Chelsea vs. Aston Villa í gær. Helvítis Chelsea þurfti að vinna! Djöf....

Það sem er kannski skemmtilegra er að ég sat hliðina á Asier del Horno sem er vinstri bakvörður Chelsea að öllu jöfnu en hann er meiddur þessa dagana. Fyrir framan mig sat svo enginn annar en Gianluca Vialli. Gaman af þessu. Á mynd af þeim báðum hliðina á mér sem ég smelli inn við tækifæri. Var aðeins að spjalla við þá en vildi ekki vera hálfvitinn sem væri að biðja um eiginhandaráritun eða uppstillta mynd.

Annars hefur ýmislegt verið að gerast í lífi lundans. Síðustu helgi var hún Berta, Berta rjómaterta í heimsókn og Rabbi félagi minn líka. Við gerðum margt skemmtilegt en það er tvennt sem stendur upp úr. Hið fyrra var þegar Andri Björn kenndi okkur saltstaukadansinn þegar við vorum í ljótudansakeppni. Ég fann reyndar upp einn annan helvíti góðan. Knapadansinn, sem býður upp á svo marga möguleika! Ef þið hittið á mig í 101 hlegina 7. og 8. okt þá hnippið þið bara í mig og ég kenni ykkur! :) Hið seinna er að við skelltum okkur á fótboltaleik hjá stórliðunum Fulham og West Ham. Héldum að sjálfsögðu með West Ham Rabba til stuðnings. Í hálfleik var staðan 0-0 og við frekar svöng þannig að við skelltum okkur í röðina til að fá okkur pulsu. Ég hafði svona ágætistrú á því að um væri að ræða ágætlega ætileg kvikindi. Allavegana...röðin var frekar löng og byrjaði leikurinn aftur áður en það kom að okkur í röðinni og heyrðum við allt í einu svakaleg fagnaðarlæti. Þá voru sem sagt West Ham menn að skora. Við bölvuðum heimsku okkar náttúrulega í sand og ösku en ákváðum að fyrst við vorum nú komin svona langt í röðinni þá væri nú best að klára þetta og fá eitthvað í gogginn. Allt í einu var fagnað aftur. Þá höfðu West Ham menn skorað aftur, og aftur höfðum við misst af því! Við fengum loks pulsurnar okkar sem voru það óætar að ég henti þeim í ruslið! Góð ákvörðun þar. West Ham skoraði ekki meira og ég hélt áfram að vera svangur!

Á þriðjudaginn var svo fagnað úrskurði ákveðinna dómara á Íslandi og á fimmtudaginn fór ég í minn fyrsta alvöru tuxedo dinner! Mega gaman og stefni ég að því að fá mér minn eigin tuxedo við fyrsta tækifæri. Óþægilegt að vera í svona leigðum því hann passar aldrei 100% á þig.

Á fimmtudaginn var Gunni Berg í heimsókn. Skelltum okkur á HK-diner sem er uppáhalds cheap-ass chinese matsölustaðurinn minn. Fengum okkur chili chicken rétt. Ég þurfti sko að tæma stir fried egg rice-ið hjá bæði Gunna og Reginu til að halda mér gangandi. Er ekki með mesta þolið gagnvart sterkum mat.

Annars styttist í heimkomu. Er ekki örugglega verið að plana eitthvað partý fyrir mig þann 7.okt?????

laugardagur, september 24, 2005

Þetta er bara snilld

www.myspace.com/dikta

Hlustið á lögin sem eru þarna....þau munu bjarga heiminu frá glötun.

Þvílíkt brill! Til hamingju strákar.

Kveðja frá Westminster Crappy

föstudagur, september 23, 2005

Klukkaður

Já hún Sigrún ákvað víst að klukka mig og ég þarf því að skrifa 5 hluti um sjálfan mig.

1. Ég er matvandur í fimmtánda veldi. Þegar ég fer á veitingahús þá er sko ekki mikil tilraunastarfsemi í gangi. Dæmi: TGI friday's (já svaka veitingahús) þá er það bara chicken and garlic pasta sem kemur til greina.

2. Ég er tónlistarfíkill. Ég hafði svo miklar áhyggjur af því að stóri iPod-inn minn yrði of stór til að taka með í transportation system-ið hér í London að ég keypti mér iPod mini til að leysa þann vanda. Viti menn, þá kemur iPod nano á markað og mig langar í hann núna! (engar áhyggjur, ég mun ekki fá mér hann)

3. Uppáhaldsdýrin mín eru lundi og selur. Þegar ég verð stór mun ég eiga lifandi slík dýr með einhverjum hætti.

4. Ég tala ensku með hallærislega miklum amerískum hreim, sem þó stundum brotnar yfir í skandinavískan hreim þegar ég veit ekki hvaða orð ég á að nota næst. Svo er reyndar einstaka orð með miklum breskum hreim farið að læðast inn á milli þar sem ég nokkrir aðilar í vinnunni tala með svo þykkum Essex hreim og segja "Fuckin' L og NOB-head" í sífellu.

5. Ég spila á gítar. Byrjaði þegar ég var níu ára að læra á klassískan spænskan gítar en þegar ég var 14 ára vildi ég meina að það væri bara ekki kúl og hætti. Sé enn eftir því í dag.

Voðalega varþ etta eitthvað óspennandi listi.

Jæja þar sem þetta er hallærislegur og leiðinlegur leikur ætla ég að taka þátt. Ég klukka Heiðu systur, Zqla Z Getz, Hjördísi Evu og Bertu.

sunnudagur, september 11, 2005

Grískur matur og fótbolti! :)

Jæja enn ein helgin að líða undir lok hérna í London. Næsta föstudag verð ég búinn að vera hérna í heila 2 mánuði. Sjiiiitt hvað tíminn líður hratt.

Annars er allt gott að frétta. Eftir mjög annasama viku í vinnunni skelltum ég og Svenni okkur á barinn með nokkrum vinnufélögum mínum. Það var ágætis fjör á okkur þar og fórum við svo út að borða með Hlíf frænku hans Svenna, Halldóri Högnasyni, Gísla Haukssyni og Halldóru. Matsölustaðurinn var grískur og er hann staðsettur við Hoxton Square. Þetta var víst mín fyrsta reynsla á grískum veitingastað síðan ég var á Kýpur 6 ára. Ég hef samt enga trú á því að ég hafi étið nokkuð annað en hamborgara þar enda bara lítill patti. Maturinn var allt í lagi. Hann var ekkert að slá mig utan undir í gæðum en ég gat alveg nartað í eitthvað af þessu.

Eftir matinn skelltum við okkur bara í eina svona litla indverja búð sem selur allt. Klukkan var samt orðinn rúmlega ellefu þannig að þeir seldu "ekkert" áfengi lengur. En vildu ekki missa viðskiptin þannig að með eilitlu álagi þá fengum við að kaupa það sem við vildum. ;-)
Kvöldið var samt bara stutt og ég var kominn í rúmið um 2 leytið enda alveg búinn eftir vikuna.

Á laugardaginn var svo skellt sér með vinnunni á Chelsea vs. Sunderland leikinn. Ég var náttla að vonast til að Chelsea myndi tapa, enda er ég alger Man Utd aðdáandi. Við veðjuðum öll fyrir leikinn á úrslitin og ýmislegt fleira. Ég veðjaði á að Chelsea myndi vinna 2-0 og að Eiður myndi skora fyrsta markið. Ég setti 10pund undir í báðum tilvikum. Því miður var Eiður tekinn útaf í hálfleik og skoraði ekki fyrsta markið en leikurinn endaði 2-0 þannig að fyrir 20 pund fékk ég 50 pund til baka. 30 pund í hagnað sem er nú allt í lagi. En vildi nú samt frekar missa allan peninginn og að Chelsea myndi tapa!

Það gerði þrumustorm fyrir leikinn og stóð hann nánast fram á kvöldið. Ég er núna næstum búinn að búa hérna í 2 mánuði en ég hef aldrei upplifað jafn mikinn raka. JESÚS! ég hélt ég ætlaði að bráðna!

Wet times...not so good times!
HLH

mánudagur, september 05, 2005

I'm the worlds greatest cook!

....fékk mér örbylgjuhitað spaghetti carbonari frá Sainsbury's (eflaust ekkert framleitt af þeim...heldur frekar af Geest Bakkabræðunum) og ristaða brauðsneið með skinku og osti......... sko...heldur betur góð máltíð!

Good stöff good times

sunnudagur, september 04, 2005

Helgin

Fínasta helgi að líða undir lok og vinna aftur í fyrramálið. En maður gerði alveg ýmislegt aldrei þessu vant.

Á föstudaginn fór ég beint eftir vinnu með vinnufélaga að hitta vini hans. Regina og Melissa vinkona hennar komu líka með okkur og við fengum okkur að borða í China-town áður en við fórum í eitthvað einkapartý á Penthouse klúbbnum við Leicester square. Það er alveg ágætisklúbbur svosem. En við vorum ekkert lengi og ég, Regina og Melissa fórum um miðnætti heim á leið. Þegar heim var komið var eldað quesadilla, spilað á gítar og sungið!

Svo var vaknað snemma á laugardagsmorgun þar sem Heiða systir var að koma í heimsókn yfir Labour Day Weekend í borg lundans. Við skelltum okkur út eftir hádegið og ég dró hana með mér að horfa á Wales vs. England landsleikinn í fótbolta eftir að við höfðum fengið okkur brunch. Svakalega góður gestgjafi.

Um kvöldið var eldað burritos. Greinilegt hver fékk að ráða hvað yrði á boðstólnum. Can't help it....luv'em burritos! Eftir matinn var ákveðið að taka stefnuna á næturklúbb við Victoriu stöðina sem heitir Pacha. Vinkona Reginu sem ég skrifaðu um hérna um daginn (Lyric L) bauð okkur að koma að horfa á vinkonu sína sem er söngkona í danshljómsveit performa þar. Þetta var alveg risastór klúbbur og komum við okkur fyrir á annarri hæðinni sem horfir yfir sviðið og stóra dansgólfið. Svo þegar þau komu á svið ætlaði þakið að rifna af kofanum. Þau fengu alveg svakalegar móttökur enda voru þau nú bara alveg mögnuð. Skemmti mér allavegana mjög vel. Hittum líka kærasta Lyric L sem ég hélt fyrst að væri Shaquille O'neal. Þeir voru ekkert smá líkir nema þessi svona 30 cm minni og heitir Anthony.

Í dag var ég svo dreginn á lappir um hálf tólf leytið. Stefnan var sett á Hampton Court sem er kastali sem á uppruna sinn frá tímum Henry VIII í kringum 1520. Alveg svakalega stórt kvikindi. Alveg magnað. Svo var maður með svona audio tourguide og alles. En mér fannst ein staðreynd alveg mögnuð. Í þessum kastala var alveg svakalega mikið af hermönnum á hverjum tíma sem voru að gæta kóngsins og í raun var ekkert um klósett þarna enda frekar óþekkt fyrirbæri. Þannig að allir gerðu bara sitt úti í horni. Oj bara!

Garðurinn í kringum kastalann var alveg magnaður. Þvílík perla! Gosbrunnur, svanir, extra mjúkt gras, hestvagnar, risastór græn tré sem voru klippt eins og sveppir í laginu o.s.frv. Bara allt til alls þarna. Mæli með þessum stað. Hampton Court!

Allavegana...farinn að sofa!

laugardagur, september 03, 2005

Enn ein strætóferð

Jæja...ég er alveg búinn að átta mig á því núna að source-ið mitt fyrir efni á þessa bloggsíðu er fólkið sem er með mér í strætó og það sem ég sé þar.

Hvað haldiði að hafi gerst í þetta skiptið?

Ég var sem sagt á leiðinni í vinnuna í gær. Fór um borð í strætóinn og fékk mér sæti þegar kona svona um fertugt kom upp að mér og bað um sætið mitt. Ég leit í áttina að glugganum til að athuga hvort það væri skilti sem segir að ég eigi að víkja. Ég nefnilega reyni að passa mig að setjast ekki í svoleiðis sæti. Svo fellur nú fertug kona ekkert undir þann flokk sem slík skilti nefna. En ég að sjálfsögðu stóð upp og bauð sætið mitt. Já mamma, ég er kannski ekki alveg nógu góður í íslenskunni en þér tókst nú að kenna mér einhverja mannasiði. En já svo stend ég í dálitla stund og þá fer manneskjan út sem sat hliðina á þessari konu sem tók mitt sæti. Ég "stekk til" og næ sætinu. Ég var nú ekkert mikið að velta þessari konu fyrir mér en tek alveg eftir því að hún er greinilega eitthvað út úr því og allt í einu hallar hún sér fram en ég tek svo sem ekki eftir neinu og heyri ekkert því ég er að hlusta á tónlist. Svo þegar hún hallar sér aftur til baka sé ég að hún er að reyna að fela eitthvað á gólfinu. Þá hafði hún sem sagt ælt á gólfið í strætóinum. Allt í einu fer að myndast radíus í kringum hana því skiljanlega vill enginn vera nálægt henni. Svo hoppar hún út á næstu stöð...af skiljanlegum ástæðum. En djöfull var þetta ógeðslegt. Ég er alveg ágætlega klígjukenndur (eða hvað sem rétta orðið er) þannig að mér leið ekkert svakalega vel. En ég var nú samt ekkert alveg við það að æla. En þetta var ógeðslegt. Ég ætla samt ekkert að fara lýsa því hvernig ælan var.

Good times...good stuff

fimmtudagur, september 01, 2005

Löggu og bófa

Magnað! Var á leiðinni heim úr vinnunni áðan í strætóinum og svona nokkrum mínútum áður en við komum að stoppustöðinni minni keyrum við framhjá svakalega mikið af bláum blikkandi ljósum. Þá er það sem sagt sjúkrabíll og 3 löggubílar sem eru staddir við eina strætistoppistöðina. Hliðina á stöðinni stendur alblóðugur gaur (eða mér sýndist hann vera það) og sjúkraliðar að gera að sárum hans meðan lögregluþjónarnir eru greinilega að tala við hann. Þetta er eflaust daglegt brauð hér þannig að strætóinn er nú ekkert að stoppa svo farþegar geti farið að virða aðstæður fyrir sér. Svo þegar ég kem að stöðinni minni og er að fara yfir götuna til að komast að heimilinu mínu sé ég annan löggubíl með bláu blikkandi ljósin á búnir að stoppa einhvern gaur og eru að skipa honum að henda sér í jörðina og læti. Hann var svo handtekinn og færður inn í löggubílinn. Ég sem mikill stórborgarbúi lyfti mér að sjálfsögðu ekkert upp við þetta og hélt bara áfram göngu minni í átt að húsinu mínu....roooooight.....ég starði! En já nokkuð ljóst að ég bý í stórborg en ekki lengur í Vrekjavik (með enskum hreim sko)!

Gaman að þessu.

miðvikudagur, ágúst 31, 2005

Reynsluakstur með Svenna

Hann Svenni Biering félagi minn sem býr nú hérna í London, tja svona að öllu jöfnu er svo heppinn að eiga eitt stykki bíl hérna. Við mæltum okkur mót í kvöld hérna í Drake House og ætluðum að skella okkur á rúntinn eins og alvöru Selfoss-hnakkar! Sævar, hvað segiru við því?? :)

Allavegana, ég sagði Svenna að bjalla í mig þegar hann væri að keyra yfir brúnna og væri alveg að koma heim til mín. Ég sem sagt bý alveg við Thames ánna og alveg við Vauxhall brúnna. Svenni hringir svo gallvaskur í mig og segir einfaldlega: "Hey það eru svona 3 mínútur í mig". Ég að sjálfsögðu stekk til og hleyp út úr húsi og niður til að verða tilbúinn. Nokkrum mínútum seinna hringir Svenni aftur og er orðinn eitthvað villtur þrátt fyrir að vera með svona aksturstölvu og rödd til að leiðbeina honum. Ég reyni að útskýra hvar þetta eigi nú að vera og hann segist koma eftir smá stund. Svo hringir hann aftur og spyr hvort ég búi við orkuver (minnir mig að hann hafi sagt). Ég bý ekki hliðina á orkuveri þannig að mig grunaði nú að hann væri nú kominn eitthvað út í ASS-gat. En að lokum fann hann þetta og við sem sagt tókum rúnt um London. Magnað, Svenni minn ég verð nú bara að segja að þú ert mun betri driver hérna í London heldur en heima á klakanum. FACT! Við kíktum á nokkra þekkta staði og fundum meira að segja skrifstofuna hans BTB (Bjöggi yngri) og Novator. Vægast sagt flottar og með útsýni yfir Hyda Park og tja nánast alla London!

Í dag var samt alger steikjandi hiti. Ég hélt á tímabili að ég væri að deyja. Þegar ég fór út af skrifstofunni til að ná mér í hádegismat hélt ég að ég hefði gengið á vegg þegar ég kom út úr húsinu. Rakinn og hitinn var svakalegur. Vissi reyndar að það yrði um 30 stiga hiti í dag. En samt! Bjóst ekki við því að rakinn yrði svona svakalegur. Íslenski frostpinninn var að bráðna. Ég gekk líka úr skugga um að allar loftkælingar á skrifstofunni voru helst á -5 gráðum á Celsíus og ég sko hlustaði ekki á neitt röfl frá neinum sem sagði að það væri kalt!

Er að lesa bók núna um Roman Abramovich og hvernig hann komst til valda í Rússlandi og varð svona suddalega ríkur. Bara ef að það væri svona ríki eins og Sovétríkin að líða undir lok núna. Ég myndi hoppa inn í það land og beita öllum brögðunum hans Romka eins og hann var víst kallaður þegar hann var lítill. Allavegana ég var sem sagt að lesa í strætóinum í morgun og var alveg sokkinn ofan í bókina, þess ber þó að geta að hún er hörmulega illa skrifuð, en samt lífið hans er bara svo áhugavert að ég gleymdi mér alveg og missti næstum af stoppistöðinni minni.

Annars er ég líka að lesa tvær aðrar bækur sem eru nokkuð skemmtilegar. Önnur þeirra heitir Buyout og fjallar um svona Management buyouts og hvernig slíkt gengur fyrir sig og hún er alveg ágæt. Svona typical bók samt sem svona ex-toppshot gaur í þessum geira skrifar. Gerir alveg svakalega úr sjálfum sér og sínum dílum og talar um hvað þeir voru stórir og allt svoleiðis. Gaman af þessu.
Hin heitir When Genious Failed: The Rise and Fall of Lond Term Capital Management. Hún er alveg mögnuð. Gaman að sjá hvað bankakerfið var tilbúið að lána doktorum í fjármálum sem höfðu hlotið Nóbelsverðlaun í hagfræði mikla peninga sem endaði svo með því að það myndaðist billjarðar dollara gap í alþjóðabankaheiminum þegar rússneska rúblan var felld gagnvart dollar árið 1998. Good stuff.

Jæja ef einhver er ennþá að lesa þessa færslu...varð helvíti þurr þarna í endann :- þá segi ég bara bless í bili.

mánudagur, ágúst 29, 2005

It's DARE

Rosalega er gott að sofa út á frídegi. Reyndi að sofa bara sem lengst = ég sofna aldrei í nótt.

Á fóninum þessa dagana er hin nýja magnaða plata Gorillaz, Demon Days. Snilld! Er orðinn það hooked á henni að nýji hringitóninn í símanum mínum er lagið Dare af plötunni. Alger snilld.

It's DARE!

Annars stefni ég á að kíkja á klakann yfir helgina 8. og 9. október. Skella mér niður í 101 og í eitt stykki brúðkaup. Auðvitað ætla ég líka að hitta mömmu og pabba og gefa þeim knús. Vonandi kemst mar bara. Væri gaman að hitta á sem flesta. So ....allir að senda mér meil með plönum fyrir þá helgi! hordur@youknowwhat.com.

Fyrst Heiða systir fór að tala um heimilislaust fólk á sínu bloggi ( www.alfheidur.blogspot.com ) verð ég aðeins að segja ykkur frá þeim sem eru hérna í borg lundans. Eitt get ég sagt, þeir eru ekki alveg jafn skemmtilegir og í New York og hvað þá San Francisco. Lenti einmitt í því í dag að það var eitt stykkið bert að ofan beint hliðina á Oxford Circus og á táslunum að taka teygjur og vinka konum sem gengu framhjá. Skil ekki að hann hafi ekki hösstlað! Svo gekk ég aðeins niður Regent Street til að taka strætóinn minn og hliðina á stoppistöðinni var annað stykki bert að ofan sem sat á jörðinni með teppi yfir fótunum. Hann var að éta einhverjar hnetur og bettlandi. Ég tók eftir því að þegar einhver myndarleg gekk framhjá honum breytti hann um tón og út kom "Hey BABY, spare some change" eða eitthvað álíka. Til hvers? Heldur hann að hann fái eitthvað frekar einhvern pening ef hann "hits them with a golden hammer"? Ekki það að þetta sé nú einhver gullhamar sem hann sló þær með! Eða hélt hann kannski að hann væri að hösstla bara? Flestar ignore-uðu nú þetta allt saman en þó kom að því að ein þeirra sneri sér við og sýndi löngutöng og hrópaði "Tosser" í áttina að honum. Frekar fyndið. Allavegana, sem sagt ekki jafn skemmtilegir heimilislausir í London og í USA. Eða tja..jújú ágætis afþreying meðan maður bíður eftir flotta rauða bílnum sínum!

L8er

Jæja....kominn tími á blog

Komiði sæl! Lundi heiti ég og þetta er víst bloggsíðan mín. Kannski ég fari nú aðeins að sinna henni.

Ýmislegt hef ég nú gert undanfarið frá því að ég bloggaði síðast. Toppurinn held ég samt sem áður að sé þegar mér tókst loks að fá wireless internetið í gang hérna á heimilinu. Mikill munur. Takk Haffi fyrir aðstoðina og til hamingju með afmælið 21.ágúst.

En já ég skellti mér á fótboltaleik um daginn með samstarfsfólki. Það var magnað. Chelsea vs. WBA sem var mikill markaleikur. Gaman að skella sér svona á völlinn. Hef bara einu sinni áður farið og það var á markalausann leik Man Utd vs. Arsenal. Það er alveg magnað að hlusta á alla aðdáendur Chelsea öskra: Champions, Champions alveg hástöfum. Þvílík læti!

Eftir leikinn vildu allir fara að dansa þannig að ferðinni var heitið upp í Notting Hill á klúbb rétt hjá Notting Hill Gate. Það var mjög gaman þar inni en það er þó tvennt sem mér langar að nefna sem mér fannst frekar fyndið. Á fóninum var fínasta dans músík, DJ-inn alveg að standa sig, en á veggjunum útum allt var verið að varpa myndum af villtu dýralífi. WHY? Ljón að elta uppi bráð, öldugangur á strönd, höfrungar að synda, selir (ekki Benedikt Ólafsson :) ) að stinga hausnum upp úr sjónum...hvað var það! Hitt var samkynhneigði maðurinn í eintómum hvítum fatnaði sem kom upp að mér í röð á klóstið (nota bene karlaklóstið bilað, allir nota kvennaklóstið) og sagðist vera dama og því ætti hann að fá að vera á undan mér í röðinni. Ég meig næstum á mig á staðnum af hlátri!

Mismikið hefur verið að gera í vinnunni undanfarið en það breytist að öllum líkindum í næstu viku. Eða svo segir dagatalið mér!

Mikið hrikalega er ég orðinn spenntur að heyra fullgerðan disk frá hljómsveitinni Dikta. Held ég að gagnrýnendurnir allir (já allir þessi fáir) heima á klaka eigi eftir að lofsyngja hann. Allavega miðað við þau lög sem ég hef heyrt. Haugur, nei ég meina Haukur röddin þín hefur vaxið svakalega! Held að skeggið þitt hafi mikið um það að segja, eða er það kannski síða hárið hans Nonna....tja allavegana annað hvort er það! :) Keep up the good work! Þarf ég nokkuð að taka það fram að ég heimta að fá eitt stykki sent með tja.......hraðpósti um leið og tök eru á! Og hvenær kemur nýja Tool platan út.....getur einhver sagt mér það???

Um þessa helgi er carnival í gangi í Notting Hill. Stendur fram á mánudag þar sem það er bank holiday í borg lundans. Valið stendur því á milli að sofa út (jebbs.....það væri nú gott) eða skella sér með Reginu og Melissu vinkonu hennar inn í Notting Hill. Jesús veit ekki hvort ég nenni í mannfjöldann! Reyndar var aðili sem ég hitti að reyna segja mér frá góðum stað til að fara á eftir hádegið á mánudeginum og hanga fram á kvöldið. Mér fannst samt bara svo fyndið hvernig hann útskýrði það. "When you get through all the mass of people, which is really hard, and get all the way to the back of the bar, you will have a good time. Actually the crowd there doesn't get any smaller, but it's still a good time." Hljómar eins og kremja fyrir mér....á ég að skella mér?

Ég er búinn að finna mér nýjan stað til að horfa á fótbolta!!! :) Það er lítill ítalskur (reyndar er hann stærri en ég hélt) veitingastaður hérna hinum megin við götuna. Never in a million years hefði ég haldið að þessi búlla væri með Sky Sports! Allavegana þannig að ég skellti mér í dag að horfa á Man Utd vinna Newcastle. Helvíti gott og svo getur mar fengið hræódýrt spaghetti bolognese þar, sem er alveg á topp 5 listanum yfir uppáhaldsmat hjá mér. Reyndar eru þjónarnir alveg steiktir, banna manni að vera með fæturnar uppi á öðrum stól sem er við borðið. Hvað er það, ekki eins og það sé von á Prinsinum af Wales inn í þessu búllu.

Þegar ég tek strætóinn á hverjum degi fer ég framhjá öllu því helsta sem túristinn í London vill sjá. Reyndar skil ég ekki afhverju terroristar völdu ekki þessa tilteknu strætóleið. Fer framhjá Westminster Abbey, Big Ben, Whitehall, Downing Street, Scotland Yard(held ég), Trafalgar Square, Piccadilly Circus, Regent Street og endar á Oxford Circus. Getur þetta verið eitthvað meira túristalegt??? Allavegana, fyrir utan Westminster er aðili sem er búinn að vera þar að mótmæla veru Breta í Írak í ég veit ekki hvað langan tíma. Þingið reyndi meira að segja að setja lög til að meina honum að vera þar að mótmæla. Lögfræðingar mótmælandans fundu bara glufur í lögunum þannig að það má ekki reka hann í burtu. Helvíti fyndið. Hann er sem sagt búinn að þekja (veit ekki hvaða orð ég á að nota hérna) eina hlið á Parliament Square sem snýr að Westminster með fánum og fullt af svona anti-War dóti. Hann er svo með rúm á einum endanum og oft þegar ég er á heimleið í strætó úr vinnunni þá sé ég hann liggja á þessu rúmi sofandi. Hann hlýtur að vera með bestu eyrnatappa í heiminum þessi maður. Hvernig gæti hann annars sofið þarna undir berum himni? Það fara svona u.þ.b. 30 strætóar framhjá honum á klukkutíma + öll önnur umferð sem er mikil meira að segja á næturna. My point is this, whatever he's using, I want it!

Hún María vinkona sendi mér skemmtilegan póst um daginn sem eflaust margir fengu með einhverjum svona skemmtilegum pælingum (tja eða heimskum pælingum frekar). Mér fannst sumt af þessu alveg endalaust fyndið og verð að deila þeim sem mér fannst skemmtilegastar með ykkur:
Fyrst það eru björgunarvesti undir sætum í flugvélum, ætli það séu fallhlífar undir sætum í Akraborginni?
Ef þú ert í farartæki sem ferðast á ljóshraða og kveikir ljósin, hvað gerist?
Afhverju er kattarmatur ekki með músabragði?
Ef geðklofi hótar að fremja sjálfsmorð, er litið á það eins og hann hafi tekið gísl?

Jæja nóg af bulli. Skal fara öpdeita mor fríkventlí og kannski setja inn myndir (á reyndar engar , skal fara taka einhverjar) og svo link-a.

P.s. Celebrity-arnir sem ég er búinn að hitta á eru orðnir tveir! George Graham fótboltaframkvæmdarstjóri(einhverjir Arsenal aðdáendur vildu nú að ég myndi sparka í hann, kannski gott ég gerði það ekki) og hinn er Jamie Redknapp fyrrum knattspyrnuhetja og núna commentator á Sky Sports.

miðvikudagur, ágúst 17, 2005

China Royal

Jæja þá er komið að öppdeiti af lífi lundans í Lundúnum.....

.....ekki mikið að frétta sosem en allavegana!

Gunnar Berg er búinn að vera hér í borg lundans síðustu daga. Hann kom á sunnudaginn og skelltum við okkur upp í Bayswater á kínverskan veitingastað sem heitir Royal China. Þvílíkur matur! SMJATT SMJATT......... fengum okkur minced beef soup í forrétt. Gef henni alveg 8 á 0-10 skalanum. En það var fullt af öðru góðu sem við fengum okkur...en eftirrétturinn var samt hápunktur kvöldsins...bíóferð að sjá the Wedding Crashers!!!!

Þeir sem eiga eftir að sjá þessa mynd eru vinsamlegast beðnir um að drulla sér núna að sjá hana. Vá hvað hún var fyndin! Það var samt undir lokin sem ég hélt að þetta væri að breytast í ALGERA Hollywood þvælu en ákveðið atriði/karakter varð til þess að það gerðist ekki. Segi ekki meir. IMDB gefur henni 7,4 í einkunn sem er nú bara helvíti gott fyrir grínmynd. Anywho...allir að skella sér. Mæli þá með ODEON bíóinu hérna á Leceister square. Fínt að hafa svona klósettin inni í bíósalnum!

Fórum líka aðeins út á laugardagskvöldið. Ég, Regina og vinur hennar frá Ungverjalandi (og hittum einhverja vini hans). Kvöldið var þó tekið snemma sökum þreytu og óþarflega ágangsömum Ungverja! EN......still.....good times!

Fyrsti leikur ársins í ensku deildinni var líka síðasta laugardag. Ég vaknaði sko sérstaklega snemma svo ég gæti farið að finna mér bar til að horfa á hann (vaknaði af þeim sökum kl.12 á hádegi :) ). Þegar ég var búinn að þræða tvo bari...annan með bara venjulegu sjónvarpsstöðvarnar hérna og hinn með Sky Sports kom í ljós að enginn leikur var sýndur þennan dag. Ekkert smá pirrandi! Svo ekki sé minna sagt.

Jæja...btw. (hvort ætli það þýði by the way eða back to work í þessu tilfelli .. HAHAHA ! )

Lundinn

mánudagur, ágúst 08, 2005

Skoskir sideburns og salsa frá Equador

Jæja þá er enn einni helginni lokið. Eftir vinnu á föstudaginn var eldað spaghetti bolognese í Drake House. Þvílík snilld. Var ekki búinn að fá spaghetti í heilar tvær vikur held ég. Það getur verið lífshættulegt þar sem allir heilvita menn vita að lundi þrífst á slíkri fæðu!

Hitti svo Atla, Ollý og Davíð seinna um kvöldið. Þau voru með Telmu úr HR og Hörð Tottenham mann með meiru í heimsókn. Telma og Hörður voru að fara á Tottenham vs. Porto á laugardag og svo á Charity shield leikinn í gær. Snilli föstudagskvöldsins var samt sem áður skoskur vinur hans Davíðs. Þvílíkur nagli! Með alvöru breska barta! Langaði að segja við hann: "Heyrðu vinur, U should seriously reconsider the size of your sideburns." (Já ég myndi blanda saman íslenskunni og enskunni!) Topp náungi!

Á laugardaginn var ég dreginn á fætur og út að skokka af room-mate-inum. Lundar eru ekki mikið fyrir langflug og eru vanir að hvíla sig inn á milli með því að setjast í ölduganginn. Þetta einkenndi þetta fyrsta útihlaup okkar Reginu....vægast sagt. Ég heyrði orðin: "U can do it" í gríð og erg! Ég er ennþá með harðsperrur í rassvöðvunum. Hver þurfti að finna um harðsperrur????

Svo var farið í búðarleiðangur að reyna kaupa það sem ennþá vantaði í íbúðina. Ég fann mér dýrindis sængurföt...bíddu....þetta er hundleiðinlegt umræðuefni....moving on...

Alþjóðagrillveisla hjá Jon kærasta Reginu var næst á dagskrá. 2 frá Equador, 1 frá Spáni, 1 frá Indlandi/USA, 1 frá Japan/Sviss, 2 frá Bretar, 2 frá Hollandi og svo eitt kvikindi frá Íslandi. Jon fær hrós fyrir mikinn og góðan mat. Kvöldið endaði svo með miklum salsa tilþrifum hjá Sebastian og Alonso frá Equador og var kennsla þeirra með mjög góð. Bráðlega mun lundinn sjást á klúbbi líkt í myndinni Along Came Polly þar sem Ben Stiller, taktlaus með eindæmum, fer og lærir salsa og brillerar svo á salsaklúbbi!

Regina fór í vinnuferð til annarar heimsálfu í dag og kemur ekki fyrr en á föstudaginn sem þýðir að ég þarf að elda sjálfur ofan í mig alla vikuna. Ég spái því að ég muni komast í náið samband við skyndibita og take out mat Lundúnarborgar.

"Það er gott að geta komist í náið samband, við náttúrunnar leyndardóma!!" Hvaða lag og flytjandi?

Good stuff.

föstudagur, ágúst 05, 2005

Helgin að ganga í garð...

....og þar með lýkur fyrstu vinnuvikunni minni í nýju vinnunni. Búinn að læra margt nýtt og hefur það verið svakalega skemmtilegt.

Í gærkveldi skellti ég mér út með Reginu og vinum hennar. Stefnan var tekin á tónleika sem vinkona hennar úr körfuboltanum var að halda á bar uppi í Notting Hill. Við hófum reyndar kvöldið á hamborgarastað sem heitir Gurmet Burger Kitchen. Þar fengum við að ég held stærstu hamborgara sem ég hef séð á minni ævi.....og já ég er ekki í USA!!!! Eftir það röltum við yfir á barinn sem var norðanlega á Portobello Road. Það er sem sagt gatan sem markaðurinn er alltaf á og sást vel í Notting Hill. Þetta var mjög skemmtilegur staður. Lítill og með litlu sviði. En það er sem sagt alltaf live tónlist þar, í hverri viku á miðvikudögum og fimmtudögum. ALLAVEGANA....vinkona Reginu kallar sig Lyric L og var satt best að segja bara alveg frábær! Tónlistin hennar sem er að öllu samin af henni er blanda af hip hop og jazzi. Hljóðfæraleikararnir hennar voru líka alveg geðveikir. Jæja skemmtilegt kvöld.

L8ez

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

Verslo done....vinna byrjuð

Jaeja ta er verslo bara lidin! Tid afsakid tad ad engir islenskir stafir eru vid lydi I tessari faerslu. Vid tvi er litid haegt ad gera.

Vonandi skemmtu flestir ser sem allra best hvar sem svo i heiminum teir voru. Eg og Sigrun skemmtum okkur mjog vel her i borg lundans.

A fostudaginn rett eftir ad hun lenti med seinni vel 'islenskaloftsins' skelltum vid okkur ut a lifid. Vid komust i kynni vid triggja manna hop af Finnum og skelltum okkur a naeturklubba nidri vid Leicester-square med teim. Finnarnir voru nu ansi spes enn voru nu samt finasta folk. Tau voru sem sagt i ferdlagi i London a styrk fra finnska rikinu i teim tilgangi ad sja sem flest god leikrit. Sem sagt tad er verid ad reyna ad baeta leikhusmenninguna i Finnlandi....tja ef eg skyldi tau rett....sem eg man ekki! Kvoldid var mjog gott fyrir utan Tequila skotin sem eg var ad stuta og tegar eg flaug a hausinn a Leicester square fyrir framan breska almugann. Ja og helvitis vibba kebab-inn sem eg fekk mer. Enda var meltingin min ekki satt vid tann vidbjod og daginn eftir var eg med alveg hrikalega magaverki naestum allan daginn.

A laugardeginum fluttum vid Regina inn i ibudina okkar herna i London. Buast ma vid myndum af henni her inna asamt fleiru vid fyrsta taekifaeri eda ollu heldur tegar eg nenni!!! Regina eldadi dyrindis fajitas eftir ad hafa heyrt ad eg vaeri ekki buinn ad fa godan burrito her i DonLon. Vegna allra flutninganna var bordad mjog seint og tvi vard baejarferd mjog stutt. Get to stoltur sagt ad eg hafi fundid goda kinverska dinerinn fra sidustu helgi og finnst mer tad nu bara afrek utaf fyrir sig. Enda var lundinn frekar vaengbrotinn eftir tad fostudagskvold!

Fyrsti vinnudagur var svo a manudaginn. Vinnan gofgar manninn. Aedislegt fjor.

Jaeja i rumid ad sofa er alveg dead in the head and want to go to bed....sko buinn ad laera agaetis ensku barasta!

Baejo

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Habib Marwan

...bara láta ykkur vita að ég sá gaur áðan á Oxford Street í nýjum Man. Utd. búningi með nafnið Habib Marwan prentað aftan á. Fyrir þá sem ekki vita þá er Habib Marwan svalasti vondi kall sem sést hefur á sjónvarpsskjám. Já hann er svakalegri en Gordon Gekko úr Wall Street, the Jackal úr The day of the Jackal, John Doe úr Se7en, Barbwire úr samnefndri mynd..nei bíddu hún var góð...æji skittir ekki.

Habib var sem sagt í nýjustu seríunni af 24. Mér líst vel á þennan gaur sem ég sá í bolnum! Hann er greinilega með svipaðan smekk og ég á sjónvarpsefni svo og forgangsröðunina! Svo er hann bara með helvíti svartan húmor að vera með svona yfirlýsingar svo stuttu eftir hryðjuverkaárásirnar hérna.

Hugmynd: Ég fæ mér nýjan Man. Utd. búning og læt prenta aftan á hann --> Jack Bauer. Þá get ég farið að hanga með þessum gaur í löggu og bófa leik? Hvernig hljómar það?

Önnur hugmynd: Allir að skrifa í commenta-kerfið hver sé þeirra uppáhalds vondi kall, tja eða kona sem birst hefur á hvíta tjaldinu.

Annars á ég von á heimsókn frá Íslandi á morgun. Sigrún Bergsdóttir... betur þekkt sem www.sigrunbergs.blogspot.com fær 1 milljón vina stiga fyrir að vera fyrst til að mæta á svæðið. Við ætlum að gera það sama og allir alvöru Íslendingar gera í Don Lon.....GRANDskoða næturlífið og væntanlega versla eitthvað!

Ble.

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Lundi á Fimmvörðuhálsi

Ég varð nú bara að deila þessari mynd með ykkur. Ég fékk hana senda í gær frá vini mínum sem gekk með mér yfir Fimmvörðuháls. Þetta er sem sagt uppi á miðjum hálsinum þegar náttúran óumflýjanlega kallaði hjá lundanum!

Takið eftir ótrúlegum díteilum í fótósjopp-vinnslu. It's almost human!

Staaaaaaaaaaaarböööööööööööööökks

Heyrst hefur að Íslendingar í London ætli að taka höndum saman og splæsa í leiguflug með Atlanta frá Luton flugvelli næstkomandi föstudagseftirmiðdag. Áfangastaður skilst mér að sé flugvöllurinn í eyjum. Þetta er á plakötum útum alla Lundúnarborg. Ég að sjálfsögðu skráði mig og er það sem sagt hér með staðfest að lundinn mun ekki vera í Eyjum næstu helgi.......

.....þetta er sem sagt mín leið til að tjá öllum að ég vil vera staddur á Íslandi núna. Tvær ástæður:

1) Verslunarmannahelgin í eyjum hljómar ótrúlega spennandi þetta árið sökum "ekki" góða veðursins sem hefur tröllriðið klakanum Íslandi undanfarið.
2) Það er hundleiðinleg rigning í London núna og ég var að kaupa mér krappí regnhlíf!

Til allra sem eru á leiðinni til Eyja, Akureyrar eða annarra skemmtilegra Versló staða: Góða skemmtun. Vonandi drepið þið sem flestar heilasellur!!! (Já biturleikinn skín í gegn ekki satt? ;-))

Annars hef ég lítið aðhafst síðustu daga. Flestir sem hafa talað mig gegnum msn eða síma ættu að vita að ég hef eignast nýjan vin. Hann heitir Starbucks og fer ég í heimsókn til hans í fáránlega marga klukkutíma á dag. Það er alltaf gaman að kynnast einhverjum nýjum þegar maður finnur að aðilar eiga svo margt sameiginlegt. Þetta er raunin með mig og Starbucks. Svo höfum við einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta. Starbucks vill peningana mína og ég vil pláss til að lesa, hanga á netinu og drekka óendanlega marga karmellu frappuchino með einstaka kaffi/espresso/cappuchino inni á milli.

Afhverju er Starbucks ekki á Íslandi? By the way hvað ætli margir fyrstaárs nemar í Háskólanum í Reykjavík séu búnir að fá þá hugmynd í kúrsinum Stofnun og Rekstur. Ábyggilega enginn...uuuuuuuuuuuuuuu....jú!

Á fóninum: Glassjaw, Dikta, Gary Jules inn á milli þess sem ég held áfram að meiða repeat takkann á iPoddinum mínum á The Mars Volta og Tool. Hverjir eru sammála mér að þau tvö bönd eru bestu hljómsveitir sem til eru í mikinn einbeitingarlestur??? :)

Ble í bili

P.s. Mér finnst að setja ætti í lög að þeir sem keyra á dýr og flýja af vettvangi ættu að vera réttdræpir. Sammála?

mánudagur, júlí 25, 2005

Hádegismatur

Ég fór áðan í makindum mínum að fá mér hádegismat hjá hinni víðfrægu skyndibita keðju McDougals sem á rætur sínar að rekja til fjallahéraða Skotlands. Eitthvað virðist þessi keðja þó vera að svíkja uppruna sinn og er enginn starfsmaður þar í skotapilsum og hefur nafninu verið breytt yfir í McDonalds. En það var ekki það sem ég ætlaði að koma hjá á framfæri.

Það var sem sagt þannig að meðan ég naut þess að gæða mér á dýrindis skosku slátri þar inni fór ég að heyra einhver óhljóð. Ég gat ekki greint hvað þetta var í fyrstu en sá að öllum öðrum háttvirtum gestum staðarins var mjög svo brugðið. Tóku þó nokkrir af þeim að rísa á fætur með bakka sína og hlaupa í burtu. Það fyrsta sem mér flaug í hug var að sjálfsögðu að þarna væri á ferðinni enn einn bjáninn sem langaði að komast á forsíður blaðanna hérna úti fyrir að gera eitthvað sem hann í heimsku sinni telur vera hetjulegt (jájá mjög svo afgerandi afstaða þar á ferð af minni hálfu). Annað kom á daginn þegar ég stóð upp og leit bak við súluna sem var milli mín og þessa sérstaka gests. Um var að ræða eldri konu á að giska sextugt sem var greinilega að berjast við einhver geðræn vandamál sem brotist höfðu fram þarna inni á skoska staðnum. Skosku starfsmennirnir gerðu hvað þeir gátu til að róa hana niður en allt kom fyrir ekki því hún hélt bara áfram að öskra og bylta sér í stólnum sínum. Þrátt fyrir að ég hafi nú vorkennt henni var ég að sama skapi mjög feginn að hún væri ekki öskrandi einhverja frasa á arabísku og dreif mig út og yfir á Starbucks sem var hliðina og fór að lesa.

Anywho.....good times!

sunnudagur, júlí 24, 2005

AC for the polarbearpuffin please!

Helgin var spes!

Á föstudaginn skellti ég mér út á lífið með Reginu, Zoe og einhverjum vinum þeirra.....sem voru allir lögfræðingar. Mér var þá tjáð að það búi einungis lögfræðingar í Islington, ég spurði að sjálfsögðu afhverju??? Svarið var einfalt....Tony Blair átti víst heima hérna. Ég vildi reyndar leiðrétta þá og segja að þetta væri sérdeildis og aldeilis ekki rétt þar sem ég þekki bara bankastráka frá Íslandi sem búa hér. Ég ákvað samt að sleppa því.

Allavegana...kvöldið hófst fremur snemma á íslenskan mælikvarða eða í kringum 5 leytið með mojito drykkjum sem Regina blandaði. Verð að segja að hún lofar góðu sem roommate þar sem þessir mojito-ar voru sko virkilega góðir. Við fórum svo á ítalskan stað sem er í uppáhaldi hjá þeim hérna í Islington. Frekar ódýr en samt góður matur. Ég hafði reyndar komið þangað nokkrum dögum áður og fannst hann bara alveg fáránlega hávær. Gamla góða íslenska fuglabjargið átti sko ekki séns í þennan stað. Anywho...maturinn var góður, var að fá mér spaghetti bolognese í annað skiptið þar frá því að ég kom. Mætti halda að ég sé farinn að sakna móður minnar, sem er eflaust satt!:)

Eftir matinn fórum við á bar sem heiti Kaston Lodge og hittum þar lögfræðingana. Þeir voru búnir að plögga okkur inn á opening night á klúbbi niðrí í Chelsea. Þetta hljómaði allt svakalega vel þannig að við slógum til. Til að gera langa sögu stutta gerðu þeir í brækurnar og loksins þegar við komum að klúbbnum gátum við ekki farið inn sem var ábyggilega fyrir bestu því við spjölluðum við einhverja kalla sem komu þaðan út og þeir sögðu að það sko engin loftkæling þarna inni. Þeir sem þekkja lundann vita að hann fílar sig ekki í of miklum hita og hefur hamskipti við slíkar aðstæður og breytist í polarbearpuffin! Við röltum þá í staðinn í átt að öðrum klúbbi sem þeir áttu að vera plöggaðir á..... en komumst ekki heldur þar inn.....eeeeeeeeeen...... að lokum fórum við á klúbb inni í Soho rétt hjá Piccadilly Circus. Allt þetta umstang var sem sagt útaf því að einn þeirra hafði verið svo góður að gefa konu og dóttur hennar far einhvern tíman í vikunni áður. Það kom svo í ljós að þessi kona var einhver svaka club-promoter og sagði að fyrir greiðann myndi hún redda honum á gestalista + vinir hans. Þessi kona virtist nú ekki hafa nein svaka ítök þegar hún var svo með okkur fyrir utan klúbbana að vesenast sjálf í því að komast inn með sig og 19 ára dóttur sína! Æðislegt uppeldi þar á ferð! :)

Á klúbbnum sem við fórum inn á tók svo einhver gaur á móti okkur og gaf okkur nafnspjald sitt. Hann er sem sagt ítalskur og heitir Lucio Luciano og sérhæfir sig í að sjá um fólk sem kemur inn á svona klúbba. Hann fór með okkur í lyftu upp margar hæðir og benti okkur á borð sem var frátekið fyrir klúbba promoterinn og við mættum nota. Þar inni var nokkuð gaman og flökkuðum við mikið á milli hæða. Lentum á spjalli við tvær stelpur. Það kom svo í ljós að önnur þeirra var barnfóstra hinnar. Mér fannst þetta alveg fáránlega fyndið! En það er gott að ríka fólkið hafi einhvern til að sjá um börnin sín!

Að lokum eftir ágætis kvöld var haldið heim á leið. Ég vaknaði svo gríðarlega ferskur í gær. *hóst* *hóst* Þannig að....ég gerði ekki rass í bala laugardagskvöldið nema smakka kínverskan take-away stað hérna....mæli með honum!

Jæja þetta var helgin mín....hvernig var þín helgi???

Það virðist vera voða vinsælt hjá bloggurum að segja frá því hvað þeir eru að hlusta á þannig að ég ætla ekki að vera neinn eftirbátur þar!

Á fóninum: Nýtt efni frá Dikta, Doves, The Archade Fire og Muse.

P.s. ég er búinn að finna burrito stað hérna. Fattaði það bara þegar ég var alveg að vera búinn með matinn minn að ég hefði getað fengið mér burrito þar!!!! AAAAAAArg

Bæbæ

föstudagur, júlí 22, 2005

Terroristi í bleikum pólóbol???

Jæja dagur 2 í blogheiminum!

Það virðist vera að heimili lundans Lundúnir séu að þróast meira og meira í átt að borg óttans Reykjavík. Hér eru hryðjuverkamenn að störfum alla daga vikunnar. Atvikið í morgun er þó nokkuð nýtt á nálinni. Þegar ég vaknaði áðan var í fréttunum að lögreglan hafi skotið mann sem grunaður var um að hafa sprengju í töskunni sinni á leiðinni í tube-ið. Það fyrsta sem ég hugsaði var, þar sem ég ætlaði mér niður í bæ á kaffihús að lesa, á ég að þora að labba einu sinni með töskuna mína með fartölvunni minni inn á lestarstöðina. Sú ákvörðun var tekin að dressa sig upp eins augljóslega og hægt væri þannig að lögreglan gæti hreinlega ekki trúað því að ég væri terroristi sem hafi fengið þjálfun í Afganistan eða Pakistan. Sjóðandi bleikur pólóbolur, túristastuttbuxur, hvítustu sokkar sem sést hafa norðan alpafjalla og sandalar urðu fyrir valinu. Er séns að terroristi myndi klæða sig solleis? Ég bara spyr. Eftir allar þessar pælingar endaði ég á því að þora ekki í underground-ið og gekk alla leið niður í bæ á tveimur jafnfljótum. Tók um 40 mínútur en það var alveg þess virði þegar ég kom svo inn á starbucks og fékk minn Frappuchino!

En meira um lífið hingað til.....
Á mánudaginn skunduðum ég og Regina í íbúðarleit. Við vorum mjög heppin. Eftir leit í aðeins einn dag þá vorum við búin að finna eina sem við vorum tilbúin að gera tilboð í að leigja. Viti menn.....tilboðið var samþykkt og ef allt gengur eftir þá flytja lundinn og Regina inn í íbúðina þann 30.júlí. Það er mjög fínt þar sem það er laugardagur, og reyndar flestir vinir staddir í eyjum líkamlega....en á himnum andlega, þannig að það er gott að hafa eitthvað fyrir stafni þá helgi til að svekkja sig ekki um of á þeirri skemmtun sem á sér stað á litlu eyjunni undan ströndum Klakans. Vinna hefst svo stundvíslega klukkan 9 1.ágúst á frídegi verslunarmanna.

Pirring vikunnar fá bankastarfsmenn Lundúnarborgar. Það að stofna bankareikning í þessu landi er held ég einn mesti vítahringur sem ég hef heyrt um þú ert ekki stúdenti eða breti. Til þess að leigja íbúð í þessu landi þarftu að hafa bankareikning, og til þess að stofna bankareikning þarftu að hafa fast heimilisfang. Þetta þarftu svo að staðfesta gagnvart hvort öðru þannig að þegar þú stofnar bankareikning verðuru að hafa með þér reikning fyrir einhverjum kostnaði útaf íbúðinni. Rafmagnsreikning, gasreikning, fastlínu reikning o.s.frv. Þessir reikningar verða að vera stílaðir á þitt nafn og greiddir. Þú verður einnig að hafa yfirlit yfir þinn reikning 3 mánuði aftur í tíman til að staðfesta heimilisfangið þitt í heimalandinu þínu. Svo verðuru að hafa staðfestingu á vinnunni þinni og blablablabalbalbalabalb. Allt þetta er til að koma í veg fyrir peningaþvætti............mig langaði nú bara að spyrja þegar ég var að standa í þessu: " Excuse me miss, but do I look like a FUCKING money laundrer???? " Jæja það þýðir ekki að svekkja sig á þessu, sérstaklega þar sem þessu var að lokum reddað.

Annars er föstudagur í dag og neyðist ég því víst til þess að kíkja aðeins út á lífið. Zoe vinkona Reginu er í London og ætla ég útað borða með þeim og einhverjum fleirum. Jon kærasti Reginu sem er mjög skemmtilegur kemur ábyggilega líka með. Hann talar með svona flottum breskum hreim! Anywho.....ætla að reyna að lesa eitthvað áður en ég fer heim að skipta um föt og skella mér út.

PuffHöddí

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Rússagull og indverskur pipar

Jæja... þá er kannski kominn tími til að segja frá því hvað lundinn hefur verið að bralla hér í Lundúnum síðustu daga.

Ég kom hingað síðasta laugardag og fór helgin í það að kynnast bjórmenningu landsmanna. Á laugardagskvöldinu kíkti ég með heiðursfólkinu Atla og Ollý, sem hafa verið svo góð að leyfa mér að gista í íbúðinni þeirra síðustu daga, niður í Chelsea að leita að Rússagulli. Því miður fundum við ekkert slíkt en fórum þó á nokkra staði. Á einum þeirra sem var svona kokkteilastaður smakkaði ég alveg svakalega góðan og frískandi vatnsmelónukokkteil. Uppistaðan var sem sagt vatnsmelóna, vodki, sykur og svo eitthvað sem ég sá ekki hvað var. Þeir sem vita hvað þetta leyniglundur var eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram. Á næsta bar var svo teygaður eitt stykki Guiness....mmmmmm.... hann vinnur á við hvern sopa, spurning hvort það sé áfengismagnið?? Kvöldið var þrátt fyrir þetta tekið frekar snemma og skunduðum við heim í kringum miðnætti.

Á sunnudeginum fór ég að hitta Fanneyju vinkonu mína sem var hér á svæðinu. Við hittumst niðri á Oxford Circus og skelltum okkur á einhvern ítalskan veitingastað þar sem við slöfruðum í okkur pasta. Eftir það var stefnan sett á Liverpool Street station þar sem við vorum að fara hitta íslensk/breskan frænda hennar að nafni Damien og vin hans sem heitir Eddie. Þar sem veðrið var svo æðislegt, eða eins og Damien sagði í sífellu: "Un-fucking believeble" eða talaði um veðrið og sagði svo "Fuckin' L", ákváðum við að skella okkur á pöbb þar sem við gátum setið úti á rétt hjá Brick Lane. Pöbbinn heitir Big Chill og var helvíti skemmtilegur. Þar sátum við helvíti lengi og þurftum nokkrum sinnum að skipta um sæti til þess að elta sólina þar sem háar byggingar í kring voru farnar að skyggja allverulega á okkur. Eftir bjórsötur og ráf um markaði þar sem við þurftum að hafa greyið Fanneyju í ól vo hún myndi ekki versla frá sér allt vit var ákveðið að ég skyldi fara á mitt fyrsta indverska veitingahús. Þjónninn okkar þar naut þess, og þá meina ég NAUT þess að ég væri að koma á svona stað í fyrsta sinn. Hann byrjaði á því að skella diski af grænum pepper á borðið og sagði að þetta væri mjög "mild" pepper. Hann sagði mér bara að skella einum í mig og þar sem ég var örlítið kenndur ákvað ég ....tja ákvað.....meira í hugsunarleysi að skella einum upp í mig og hakka hann í mig. Ef ég man rétt þá sönglaði ég McDonalds lagið "I'm Luvin' It" áður en piparinn fór inn fyrir mínar varir. Orð geta ekki líst þeirri vanlíðan sem fylgdi og ég sem algjör amatör í indverskum mat tók að þamba bjórinn minn þegar allir vanir indverjar og wannabe indverjar vita að það er mjólk og myntusúkkulaði sem bjargar þér en annar vökvi gerir ekkert. Ég sem sagt grét eins og nýfætt barn þarna meðan ég beið eftir mjólkinni minni, sem by the way var ekki beint af íslenskum gæðum. Eftir dágóða stund fór mér að líða betur. En sjiiiiiitt þessi matur þeirra getur verið sterkur!

Jæja nóg í bili.
kv.Puff Diddy

Nýtt og ferskt.....

.....blog....önlæk ení oðer ðat jú hev sín!

Puff Hoddí er mættur á svæðið!