sunnudagur, september 25, 2005

del Horno og Vialli....my best friends

Fór á Chelsea vs. Aston Villa í gær. Helvítis Chelsea þurfti að vinna! Djöf....

Það sem er kannski skemmtilegra er að ég sat hliðina á Asier del Horno sem er vinstri bakvörður Chelsea að öllu jöfnu en hann er meiddur þessa dagana. Fyrir framan mig sat svo enginn annar en Gianluca Vialli. Gaman af þessu. Á mynd af þeim báðum hliðina á mér sem ég smelli inn við tækifæri. Var aðeins að spjalla við þá en vildi ekki vera hálfvitinn sem væri að biðja um eiginhandaráritun eða uppstillta mynd.

Annars hefur ýmislegt verið að gerast í lífi lundans. Síðustu helgi var hún Berta, Berta rjómaterta í heimsókn og Rabbi félagi minn líka. Við gerðum margt skemmtilegt en það er tvennt sem stendur upp úr. Hið fyrra var þegar Andri Björn kenndi okkur saltstaukadansinn þegar við vorum í ljótudansakeppni. Ég fann reyndar upp einn annan helvíti góðan. Knapadansinn, sem býður upp á svo marga möguleika! Ef þið hittið á mig í 101 hlegina 7. og 8. okt þá hnippið þið bara í mig og ég kenni ykkur! :) Hið seinna er að við skelltum okkur á fótboltaleik hjá stórliðunum Fulham og West Ham. Héldum að sjálfsögðu með West Ham Rabba til stuðnings. Í hálfleik var staðan 0-0 og við frekar svöng þannig að við skelltum okkur í röðina til að fá okkur pulsu. Ég hafði svona ágætistrú á því að um væri að ræða ágætlega ætileg kvikindi. Allavegana...röðin var frekar löng og byrjaði leikurinn aftur áður en það kom að okkur í röðinni og heyrðum við allt í einu svakaleg fagnaðarlæti. Þá voru sem sagt West Ham menn að skora. Við bölvuðum heimsku okkar náttúrulega í sand og ösku en ákváðum að fyrst við vorum nú komin svona langt í röðinni þá væri nú best að klára þetta og fá eitthvað í gogginn. Allt í einu var fagnað aftur. Þá höfðu West Ham menn skorað aftur, og aftur höfðum við misst af því! Við fengum loks pulsurnar okkar sem voru það óætar að ég henti þeim í ruslið! Góð ákvörðun þar. West Ham skoraði ekki meira og ég hélt áfram að vera svangur!

Á þriðjudaginn var svo fagnað úrskurði ákveðinna dómara á Íslandi og á fimmtudaginn fór ég í minn fyrsta alvöru tuxedo dinner! Mega gaman og stefni ég að því að fá mér minn eigin tuxedo við fyrsta tækifæri. Óþægilegt að vera í svona leigðum því hann passar aldrei 100% á þig.

Á fimmtudaginn var Gunni Berg í heimsókn. Skelltum okkur á HK-diner sem er uppáhalds cheap-ass chinese matsölustaðurinn minn. Fengum okkur chili chicken rétt. Ég þurfti sko að tæma stir fried egg rice-ið hjá bæði Gunna og Reginu til að halda mér gangandi. Er ekki með mesta þolið gagnvart sterkum mat.

Annars styttist í heimkomu. Er ekki örugglega verið að plana eitthvað partý fyrir mig þann 7.okt?????

laugardagur, september 24, 2005

Þetta er bara snilld

www.myspace.com/dikta

Hlustið á lögin sem eru þarna....þau munu bjarga heiminu frá glötun.

Þvílíkt brill! Til hamingju strákar.

Kveðja frá Westminster Crappy

föstudagur, september 23, 2005

Klukkaður

Já hún Sigrún ákvað víst að klukka mig og ég þarf því að skrifa 5 hluti um sjálfan mig.

1. Ég er matvandur í fimmtánda veldi. Þegar ég fer á veitingahús þá er sko ekki mikil tilraunastarfsemi í gangi. Dæmi: TGI friday's (já svaka veitingahús) þá er það bara chicken and garlic pasta sem kemur til greina.

2. Ég er tónlistarfíkill. Ég hafði svo miklar áhyggjur af því að stóri iPod-inn minn yrði of stór til að taka með í transportation system-ið hér í London að ég keypti mér iPod mini til að leysa þann vanda. Viti menn, þá kemur iPod nano á markað og mig langar í hann núna! (engar áhyggjur, ég mun ekki fá mér hann)

3. Uppáhaldsdýrin mín eru lundi og selur. Þegar ég verð stór mun ég eiga lifandi slík dýr með einhverjum hætti.

4. Ég tala ensku með hallærislega miklum amerískum hreim, sem þó stundum brotnar yfir í skandinavískan hreim þegar ég veit ekki hvaða orð ég á að nota næst. Svo er reyndar einstaka orð með miklum breskum hreim farið að læðast inn á milli þar sem ég nokkrir aðilar í vinnunni tala með svo þykkum Essex hreim og segja "Fuckin' L og NOB-head" í sífellu.

5. Ég spila á gítar. Byrjaði þegar ég var níu ára að læra á klassískan spænskan gítar en þegar ég var 14 ára vildi ég meina að það væri bara ekki kúl og hætti. Sé enn eftir því í dag.

Voðalega varþ etta eitthvað óspennandi listi.

Jæja þar sem þetta er hallærislegur og leiðinlegur leikur ætla ég að taka þátt. Ég klukka Heiðu systur, Zqla Z Getz, Hjördísi Evu og Bertu.

sunnudagur, september 11, 2005

Grískur matur og fótbolti! :)

Jæja enn ein helgin að líða undir lok hérna í London. Næsta föstudag verð ég búinn að vera hérna í heila 2 mánuði. Sjiiiitt hvað tíminn líður hratt.

Annars er allt gott að frétta. Eftir mjög annasama viku í vinnunni skelltum ég og Svenni okkur á barinn með nokkrum vinnufélögum mínum. Það var ágætis fjör á okkur þar og fórum við svo út að borða með Hlíf frænku hans Svenna, Halldóri Högnasyni, Gísla Haukssyni og Halldóru. Matsölustaðurinn var grískur og er hann staðsettur við Hoxton Square. Þetta var víst mín fyrsta reynsla á grískum veitingastað síðan ég var á Kýpur 6 ára. Ég hef samt enga trú á því að ég hafi étið nokkuð annað en hamborgara þar enda bara lítill patti. Maturinn var allt í lagi. Hann var ekkert að slá mig utan undir í gæðum en ég gat alveg nartað í eitthvað af þessu.

Eftir matinn skelltum við okkur bara í eina svona litla indverja búð sem selur allt. Klukkan var samt orðinn rúmlega ellefu þannig að þeir seldu "ekkert" áfengi lengur. En vildu ekki missa viðskiptin þannig að með eilitlu álagi þá fengum við að kaupa það sem við vildum. ;-)
Kvöldið var samt bara stutt og ég var kominn í rúmið um 2 leytið enda alveg búinn eftir vikuna.

Á laugardaginn var svo skellt sér með vinnunni á Chelsea vs. Sunderland leikinn. Ég var náttla að vonast til að Chelsea myndi tapa, enda er ég alger Man Utd aðdáandi. Við veðjuðum öll fyrir leikinn á úrslitin og ýmislegt fleira. Ég veðjaði á að Chelsea myndi vinna 2-0 og að Eiður myndi skora fyrsta markið. Ég setti 10pund undir í báðum tilvikum. Því miður var Eiður tekinn útaf í hálfleik og skoraði ekki fyrsta markið en leikurinn endaði 2-0 þannig að fyrir 20 pund fékk ég 50 pund til baka. 30 pund í hagnað sem er nú allt í lagi. En vildi nú samt frekar missa allan peninginn og að Chelsea myndi tapa!

Það gerði þrumustorm fyrir leikinn og stóð hann nánast fram á kvöldið. Ég er núna næstum búinn að búa hérna í 2 mánuði en ég hef aldrei upplifað jafn mikinn raka. JESÚS! ég hélt ég ætlaði að bráðna!

Wet times...not so good times!
HLH

mánudagur, september 05, 2005

I'm the worlds greatest cook!

....fékk mér örbylgjuhitað spaghetti carbonari frá Sainsbury's (eflaust ekkert framleitt af þeim...heldur frekar af Geest Bakkabræðunum) og ristaða brauðsneið með skinku og osti......... sko...heldur betur góð máltíð!

Good stöff good times

sunnudagur, september 04, 2005

Helgin

Fínasta helgi að líða undir lok og vinna aftur í fyrramálið. En maður gerði alveg ýmislegt aldrei þessu vant.

Á föstudaginn fór ég beint eftir vinnu með vinnufélaga að hitta vini hans. Regina og Melissa vinkona hennar komu líka með okkur og við fengum okkur að borða í China-town áður en við fórum í eitthvað einkapartý á Penthouse klúbbnum við Leicester square. Það er alveg ágætisklúbbur svosem. En við vorum ekkert lengi og ég, Regina og Melissa fórum um miðnætti heim á leið. Þegar heim var komið var eldað quesadilla, spilað á gítar og sungið!

Svo var vaknað snemma á laugardagsmorgun þar sem Heiða systir var að koma í heimsókn yfir Labour Day Weekend í borg lundans. Við skelltum okkur út eftir hádegið og ég dró hana með mér að horfa á Wales vs. England landsleikinn í fótbolta eftir að við höfðum fengið okkur brunch. Svakalega góður gestgjafi.

Um kvöldið var eldað burritos. Greinilegt hver fékk að ráða hvað yrði á boðstólnum. Can't help it....luv'em burritos! Eftir matinn var ákveðið að taka stefnuna á næturklúbb við Victoriu stöðina sem heitir Pacha. Vinkona Reginu sem ég skrifaðu um hérna um daginn (Lyric L) bauð okkur að koma að horfa á vinkonu sína sem er söngkona í danshljómsveit performa þar. Þetta var alveg risastór klúbbur og komum við okkur fyrir á annarri hæðinni sem horfir yfir sviðið og stóra dansgólfið. Svo þegar þau komu á svið ætlaði þakið að rifna af kofanum. Þau fengu alveg svakalegar móttökur enda voru þau nú bara alveg mögnuð. Skemmti mér allavegana mjög vel. Hittum líka kærasta Lyric L sem ég hélt fyrst að væri Shaquille O'neal. Þeir voru ekkert smá líkir nema þessi svona 30 cm minni og heitir Anthony.

Í dag var ég svo dreginn á lappir um hálf tólf leytið. Stefnan var sett á Hampton Court sem er kastali sem á uppruna sinn frá tímum Henry VIII í kringum 1520. Alveg svakalega stórt kvikindi. Alveg magnað. Svo var maður með svona audio tourguide og alles. En mér fannst ein staðreynd alveg mögnuð. Í þessum kastala var alveg svakalega mikið af hermönnum á hverjum tíma sem voru að gæta kóngsins og í raun var ekkert um klósett þarna enda frekar óþekkt fyrirbæri. Þannig að allir gerðu bara sitt úti í horni. Oj bara!

Garðurinn í kringum kastalann var alveg magnaður. Þvílík perla! Gosbrunnur, svanir, extra mjúkt gras, hestvagnar, risastór græn tré sem voru klippt eins og sveppir í laginu o.s.frv. Bara allt til alls þarna. Mæli með þessum stað. Hampton Court!

Allavegana...farinn að sofa!

laugardagur, september 03, 2005

Enn ein strætóferð

Jæja...ég er alveg búinn að átta mig á því núna að source-ið mitt fyrir efni á þessa bloggsíðu er fólkið sem er með mér í strætó og það sem ég sé þar.

Hvað haldiði að hafi gerst í þetta skiptið?

Ég var sem sagt á leiðinni í vinnuna í gær. Fór um borð í strætóinn og fékk mér sæti þegar kona svona um fertugt kom upp að mér og bað um sætið mitt. Ég leit í áttina að glugganum til að athuga hvort það væri skilti sem segir að ég eigi að víkja. Ég nefnilega reyni að passa mig að setjast ekki í svoleiðis sæti. Svo fellur nú fertug kona ekkert undir þann flokk sem slík skilti nefna. En ég að sjálfsögðu stóð upp og bauð sætið mitt. Já mamma, ég er kannski ekki alveg nógu góður í íslenskunni en þér tókst nú að kenna mér einhverja mannasiði. En já svo stend ég í dálitla stund og þá fer manneskjan út sem sat hliðina á þessari konu sem tók mitt sæti. Ég "stekk til" og næ sætinu. Ég var nú ekkert mikið að velta þessari konu fyrir mér en tek alveg eftir því að hún er greinilega eitthvað út úr því og allt í einu hallar hún sér fram en ég tek svo sem ekki eftir neinu og heyri ekkert því ég er að hlusta á tónlist. Svo þegar hún hallar sér aftur til baka sé ég að hún er að reyna að fela eitthvað á gólfinu. Þá hafði hún sem sagt ælt á gólfið í strætóinum. Allt í einu fer að myndast radíus í kringum hana því skiljanlega vill enginn vera nálægt henni. Svo hoppar hún út á næstu stöð...af skiljanlegum ástæðum. En djöfull var þetta ógeðslegt. Ég er alveg ágætlega klígjukenndur (eða hvað sem rétta orðið er) þannig að mér leið ekkert svakalega vel. En ég var nú samt ekkert alveg við það að æla. En þetta var ógeðslegt. Ég ætla samt ekkert að fara lýsa því hvernig ælan var.

Good times...good stuff

fimmtudagur, september 01, 2005

Löggu og bófa

Magnað! Var á leiðinni heim úr vinnunni áðan í strætóinum og svona nokkrum mínútum áður en við komum að stoppustöðinni minni keyrum við framhjá svakalega mikið af bláum blikkandi ljósum. Þá er það sem sagt sjúkrabíll og 3 löggubílar sem eru staddir við eina strætistoppistöðina. Hliðina á stöðinni stendur alblóðugur gaur (eða mér sýndist hann vera það) og sjúkraliðar að gera að sárum hans meðan lögregluþjónarnir eru greinilega að tala við hann. Þetta er eflaust daglegt brauð hér þannig að strætóinn er nú ekkert að stoppa svo farþegar geti farið að virða aðstæður fyrir sér. Svo þegar ég kem að stöðinni minni og er að fara yfir götuna til að komast að heimilinu mínu sé ég annan löggubíl með bláu blikkandi ljósin á búnir að stoppa einhvern gaur og eru að skipa honum að henda sér í jörðina og læti. Hann var svo handtekinn og færður inn í löggubílinn. Ég sem mikill stórborgarbúi lyfti mér að sjálfsögðu ekkert upp við þetta og hélt bara áfram göngu minni í átt að húsinu mínu....roooooight.....ég starði! En já nokkuð ljóst að ég bý í stórborg en ekki lengur í Vrekjavik (með enskum hreim sko)!

Gaman að þessu.