sunnudagur, janúar 22, 2006

Fancy a drink? I just got stood up!

Var á leiðinni í Tube-ið áðan þegar að kona um fertugt vatt sér upp að mér og spurði mig að þessu. Að sjálfsögðu skellti ég mér með henni í drykk og við skemmtum okkur konunglega. Hmmm nei það er nú ekki líklegt. Ég gekk bara framhjá henni og hunsaði hana.

Annars er ekki mikið að frétta af mér. Alltaf nóg að gera í vinnunni og unnið flesta daga. Við höfum núna skipt hópnum niður í tvennt og fluttumst ég og Andrew lögfræðingurinn yfir á 3-ju hæðina. Með okkur eru tveir nýjir starfsmenn. Annar þeirra er aðstoðarlögfræðingur og hinn er Gummi. Strákur sem hefur verið að læra viðskiptafræði í Danmörku og verður lærlingur hjá okkur fram á sumar.

Bjarki og Hjördís voru í heimsókn í London yfir helgina en ég náði því miður ekki að eyða miklum tíma með þeim. Glataður gaur.

Á fimmtudaginn koma svo Stefán Bjarni og Halli Steinþórss. Þeir verða fimmtudag til sunnudags og er búist við mikilli bjórrigningu á þeim tíma. Þeir eru að fara til Prag þar sem Halli verður í nokkra mánuði en Stebbi ætlar að kíkja með honum í tvær vikur.

Ég fékk webcam í jólagjöf frá brósa, reyndar gaf hann öllum fjölskyldumeðlimum slíka enda erum við svo alþjóðleg fjölskylda. Skilst að mamma og Heiða systir hafi verið að nota þetta óspart. Ég drullaðist loksins til að láta græjuna upp fyrir nokkrum dögum! Helvítis leti er þetta alltaf hreint.

Er að fara á Chelsea vs. Barcelona 22.feb ásamt góðum hópi af valinkunnumandansmönnum. Það verður gaman. Förum 8 saman. Úff hvað ég hlakka til. Ronaldinho....work your magic!

Manchester United: Til hamingju með sigurinn í dag!

Á fóninum:
Arcade Fire
Madonna
Tool
Kanye West

Í bókinni:
Freakonomics - ágætis bók um skemmtilegar hagfræði pælingar, eins og "Why do drug dealers still live with their mothers?"
Straumhvörf - ekki svo góð bók um útrás íslenskra fyrirtækja. Helst aldrei við lesturinn þegar ég reyni að kíkja í hana

Í download-inu
5-ta sería af 24 - byrjar nokkuð þétt, búinn með 4 fyrstu þættina
OC 3 sería - alltaf gaman af vandamálum ríku krakkanna
Lost 2 sería - Æji ég veit það ekki, jújú þetta er alveg ágætt!

Aðrar pælingar:
Ég held ég færi iPod sounddock-ið upp í vinnu. Er hvort eð er alltaf þar.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Kominn aftur til DonLon

Sæl veriði og gleðilegt nýtt ár

Nú er ég kominn aftur til London eftir stutt stopp heima. Ég vil þakka öllum þeim sem ég hitti á þessum stutta tíma heima fyrir ánægjulegar samverustundir!

Meira var það ekki að sinni....eða jú.... ég er veikur!