föstudagur, nóvember 11, 2005

Röööössel Kró

Heil og sæl
Bara láta ykkur vita...ég hitti Russell Crowe í dag. Skemmtilegt nokk.

Annars skellti ég mér síðustu helgi upp til Manchester til að sjá besta leik ársins. Djöfull stóðu mínir menn sig vel!!!!

Ég, Skúli, Jón Bjarni, Jónas og Maggi fórum í lest á laugardeginum upp til Manchester þar sem við hittum fyrir þá Sigga og Börk. Við skelltum okkur með Jónasi afmælisbarni á spænskan veitingastað. Þar áttum við staðinn með íslenskum söngvum. Enduðum kvöldið á því að syngja allir sex eins hátt og við gátum íslenska lofsönginn! Það voru æðislegar viðtökur. :-)

Fyrir utan leikvanginn á sunnudeginum var margt um Íslendinginn. Lá við að maður heyrði íslensku hvar sem maður snéri sér. Ég hef aldrei upplifað svona mikla stemningu. Ótrúlegt en satt...lestin á leiðinni til baka var á réttum tíma. Ekki algengt hjá breskum lestum!

Allavegana...slökun þessa helgina og vinna. Gúdd stöff!

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heyy gleymdir að telja mig með :@

þetta var massa leikur en vitlaust lið vann og punktur

HLH-flokkurinn sagði...

sorrý gunni...hafði þig í huga en gleymdi að skrifa.....

þetta var jú massaleikur en ég er ekki sammála að vitlaust lið hafi unnið...það er bara eitthvað sem tapsárir einstaklingar segja...ég sá chelsea ekki koma boltanum í netið!!!!

Mokki litli sagði...

Hvert sem þú snerir þér kallinn minn.

HLH-flokkurinn sagði...

Vá hvað ég er steiktur. Við vorum átta saman á þessu veitingahúsi sem vorum að syngja.

Já já magga mín ég skal skrifa þetta hjá mér og reyna að bæta mig næst. Fer nú að alfarið að hætta að nenna að blogga ef þetta er það eina sem fólk nennir að kommenta um. :(

Nafnlaus sagði...

Hvað,ekkert fleira um Russel Crowe?
Ma

HLH-flokkurinn sagði...

Nei hann var bara þarna í versluninni hliðina á. Eða reyndar eitt fyndið. Dyravörðurinn í byggingunni okkar er nokkuð gamall. Hann stóð þarna fyrir utan nokkuð spenntur og ætlaði að biðja um eiginhandaráritun. Svo kom konan hans RC út ásamt lífverðinum þeirra sem var nú frekar stór maður. Dyraverðinum tókst að gerast svo frægur að ganga upp að lífverðinum og biðja hann um eiginhandaraáritun. Held hann þurfi ný gleraugu því RC er sko ekki svona stór!