föstudagur, júlí 22, 2005

Terroristi í bleikum pólóbol???

Jæja dagur 2 í blogheiminum!

Það virðist vera að heimili lundans Lundúnir séu að þróast meira og meira í átt að borg óttans Reykjavík. Hér eru hryðjuverkamenn að störfum alla daga vikunnar. Atvikið í morgun er þó nokkuð nýtt á nálinni. Þegar ég vaknaði áðan var í fréttunum að lögreglan hafi skotið mann sem grunaður var um að hafa sprengju í töskunni sinni á leiðinni í tube-ið. Það fyrsta sem ég hugsaði var, þar sem ég ætlaði mér niður í bæ á kaffihús að lesa, á ég að þora að labba einu sinni með töskuna mína með fartölvunni minni inn á lestarstöðina. Sú ákvörðun var tekin að dressa sig upp eins augljóslega og hægt væri þannig að lögreglan gæti hreinlega ekki trúað því að ég væri terroristi sem hafi fengið þjálfun í Afganistan eða Pakistan. Sjóðandi bleikur pólóbolur, túristastuttbuxur, hvítustu sokkar sem sést hafa norðan alpafjalla og sandalar urðu fyrir valinu. Er séns að terroristi myndi klæða sig solleis? Ég bara spyr. Eftir allar þessar pælingar endaði ég á því að þora ekki í underground-ið og gekk alla leið niður í bæ á tveimur jafnfljótum. Tók um 40 mínútur en það var alveg þess virði þegar ég kom svo inn á starbucks og fékk minn Frappuchino!

En meira um lífið hingað til.....
Á mánudaginn skunduðum ég og Regina í íbúðarleit. Við vorum mjög heppin. Eftir leit í aðeins einn dag þá vorum við búin að finna eina sem við vorum tilbúin að gera tilboð í að leigja. Viti menn.....tilboðið var samþykkt og ef allt gengur eftir þá flytja lundinn og Regina inn í íbúðina þann 30.júlí. Það er mjög fínt þar sem það er laugardagur, og reyndar flestir vinir staddir í eyjum líkamlega....en á himnum andlega, þannig að það er gott að hafa eitthvað fyrir stafni þá helgi til að svekkja sig ekki um of á þeirri skemmtun sem á sér stað á litlu eyjunni undan ströndum Klakans. Vinna hefst svo stundvíslega klukkan 9 1.ágúst á frídegi verslunarmanna.

Pirring vikunnar fá bankastarfsmenn Lundúnarborgar. Það að stofna bankareikning í þessu landi er held ég einn mesti vítahringur sem ég hef heyrt um þú ert ekki stúdenti eða breti. Til þess að leigja íbúð í þessu landi þarftu að hafa bankareikning, og til þess að stofna bankareikning þarftu að hafa fast heimilisfang. Þetta þarftu svo að staðfesta gagnvart hvort öðru þannig að þegar þú stofnar bankareikning verðuru að hafa með þér reikning fyrir einhverjum kostnaði útaf íbúðinni. Rafmagnsreikning, gasreikning, fastlínu reikning o.s.frv. Þessir reikningar verða að vera stílaðir á þitt nafn og greiddir. Þú verður einnig að hafa yfirlit yfir þinn reikning 3 mánuði aftur í tíman til að staðfesta heimilisfangið þitt í heimalandinu þínu. Svo verðuru að hafa staðfestingu á vinnunni þinni og blablablabalbalbalabalb. Allt þetta er til að koma í veg fyrir peningaþvætti............mig langaði nú bara að spyrja þegar ég var að standa í þessu: " Excuse me miss, but do I look like a FUCKING money laundrer???? " Jæja það þýðir ekki að svekkja sig á þessu, sérstaklega þar sem þessu var að lokum reddað.

Annars er föstudagur í dag og neyðist ég því víst til þess að kíkja aðeins út á lífið. Zoe vinkona Reginu er í London og ætla ég útað borða með þeim og einhverjum fleirum. Jon kærasti Reginu sem er mjög skemmtilegur kemur ábyggilega líka með. Hann talar með svona flottum breskum hreim! Anywho.....ætla að reyna að lesa eitthvað áður en ég fer heim að skipta um föt og skella mér út.

PuffHöddí

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

anaegdur med thetta framtak.....
Frappuchino rules.....
mun fylgjast grannt med!

Nafnlaus sagði...

Vááááááá hvað þú hefur verið heitur í þessu átfitti ómægod !
Luv Maggss

Nafnlaus sagði...

Ég er þokkalega sátt við að þú labbaðir bara í bleika pólóbolnum í staðinn fyrir að taka lestina!
Hjúk marr :) Hefur nú samt alltaf verið halfgerður terroristi, ég segi nú bara APPELSÍN!!!!
Luv Hjöra