miðvikudagur, ágúst 17, 2005

China Royal

Jæja þá er komið að öppdeiti af lífi lundans í Lundúnum.....

.....ekki mikið að frétta sosem en allavegana!

Gunnar Berg er búinn að vera hér í borg lundans síðustu daga. Hann kom á sunnudaginn og skelltum við okkur upp í Bayswater á kínverskan veitingastað sem heitir Royal China. Þvílíkur matur! SMJATT SMJATT......... fengum okkur minced beef soup í forrétt. Gef henni alveg 8 á 0-10 skalanum. En það var fullt af öðru góðu sem við fengum okkur...en eftirrétturinn var samt hápunktur kvöldsins...bíóferð að sjá the Wedding Crashers!!!!

Þeir sem eiga eftir að sjá þessa mynd eru vinsamlegast beðnir um að drulla sér núna að sjá hana. Vá hvað hún var fyndin! Það var samt undir lokin sem ég hélt að þetta væri að breytast í ALGERA Hollywood þvælu en ákveðið atriði/karakter varð til þess að það gerðist ekki. Segi ekki meir. IMDB gefur henni 7,4 í einkunn sem er nú bara helvíti gott fyrir grínmynd. Anywho...allir að skella sér. Mæli þá með ODEON bíóinu hérna á Leceister square. Fínt að hafa svona klósettin inni í bíósalnum!

Fórum líka aðeins út á laugardagskvöldið. Ég, Regina og vinur hennar frá Ungverjalandi (og hittum einhverja vini hans). Kvöldið var þó tekið snemma sökum þreytu og óþarflega ágangsömum Ungverja! EN......still.....good times!

Fyrsti leikur ársins í ensku deildinni var líka síðasta laugardag. Ég vaknaði sko sérstaklega snemma svo ég gæti farið að finna mér bar til að horfa á hann (vaknaði af þeim sökum kl.12 á hádegi :) ). Þegar ég var búinn að þræða tvo bari...annan með bara venjulegu sjónvarpsstöðvarnar hérna og hinn með Sky Sports kom í ljós að enginn leikur var sýndur þennan dag. Ekkert smá pirrandi! Svo ekki sé minna sagt.

Jæja...btw. (hvort ætli það þýði by the way eða back to work í þessu tilfelli .. HAHAHA ! )

Lundinn

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæhæhæhæhæhæ!!!
Þér virðist nú ekki leiðast mikið þarna úti!! öss öss - mætti halda að London væri e-ð meira spennandi en Reykjavík hmmm :S.....
Gaman að fylgjast með þér og hafðu það áfram gott!
Etv á maður eftir að hitta þig á "röltinu" í London í sept:)

Nafnlaus sagði...

back to work í þínu tilfelli! en hvernig er það- fluttur til Englands en getur hvergi séð enska boltann.. komdu þér bara heim og hættu þessu rugli

Nafnlaus sagði...

Galiano Hot Shot! Höddi, ég held þú sért veglegur International Representative & c.e.o. of Public relations fyrir Galiano World Inc. Lagðir Rotter og Amster á hliðina í leit og lofum að The one and only Galiano Hot Stuff :) Alveg kreisí óður...

Well...bið að heilsa Díönu (og Dodi)

Nafnlaus sagði...

Er London orðinn svefnbær? Gerist aldrei neitt?

-haffi

Nafnlaus sagði...

Komdu nú með nýjan pistil þegar rennur af þér.

HLH-flokkurinn sagði...

já já ég skal fara að skrifa eitthvað bráðlega.

Var loksins að setja upp internetið heima hjá mér en er ennþá að vesenast með þráðlausanetið!

Haffi nenniru aðkoma í heimsókn og redda þessu?

Nafnlaus sagði...

RTFM (Read the fucking manual)

-haffi

Nafnlaus sagði...

Who da man?

HLH-flokkurinn sagði...

True true......wireless komið í gang og allt þér að þakka! Bikemastah!!! In da Drake House!