fimmtudagur, nóvember 17, 2005

MIKE TYSON

Óargardýrið sjálft var í sömu skartgripaverslun í gær og Russell Crowe var um daginn. ÉG MISSTI AF HONUM!!! Var á námskeiði inni í City. GLATAÐ.

Respect, CUT!

mánudagur, nóvember 14, 2005

Bratwurst

Var á námskeiði í dag þar sem ég var að rifja upp eitt og annað samabandi við fjármál og verðmat. Á námskeiðinu með mér (samtals tíu manns) voru 7 þjóðverjar sem komu í þeim einum erindagjörðum til London til að sækja þetta námskeið. Er víst svaka þekkt námskeið í bankaheiminum og því ekki óalgengt að útlendingar sæki það. Allavegana. Ég var nánast í hláturskrampa í allan dag vegna þess að þjóðverjar sem eru ekkert alltof færir í ensku eða tala hana með miklum og þykkum hreim er eitthvað það fyndnasta sem ég veit um. Öll ESSSS verða alveg ssssshhhvakalega ýkt og svo hljóma þeir oft eins og þeir séu að fara að skæla.

Námskeiðið er haldið inni í City sem er aðal fjármála / bankahverfið í London. Ég aftur á móti starfa í Mayfair sem er rétt hjá Oxford Street. Munurinn á þessu tvennu er alveg svakalegur. Sér í lagi er það munurinn á byggingunum. Það er mjög greinilegt að sumar bankastofnanirnar eiga of mikinn pening og hætta að hugsa um nokkuð sem er rökrétt. ABN AMRO bankinn er til að mynda með held ég stærsta andyri sem ég hef séð. Það eru svona 25 hæðir til lofts í glerhýsinu sem er andyrið og þar inni er svona u.þ.b. 5% af rými nýtt til einhvers sem "meikar sens". En er að sjálfsögðu alveg ótrúlega flott og því það eina sem skiptir máli.

Djöfull er kalt í London!

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Ég vildi að ég væri rokkstjarna á áttunda áratugnum!

Á einhver tímavél? Er að horfa á myndina Almost Famous. Æðisleg mynd. Afhverju er ég ekki rokkstjarna í vinsælli hljómsveit. Kannski fyrir bestu. Held að ég myndi aldrei getað höndlað það.

Upplifaði skemmtileg móment í dag:

1) Var að rölta á Oxford Street að leita mér að einhverjum stað til að borða. Þar sá ég fjölskyldu. Móðir, faðir og tvö börn. Ekkert merkilegt nema það að móðirinn gekk að ruslatunnunni og ældi í hana. Skemmtilegt!

2) Var á heimleið, röltandi í áttina að Green Park með Mars Volta í botni í eyrunum. Heyri út undan mér einhvern segja: "Excuse me sir". Ég leit við og sá gamla konu sem virkaði alveg meinlaus þannig að ég tók headphone-in af mér og spurði hvað hún vildi. Þá byrjaði hún allt í einu að spyrja mig hvort ég gæti mögulega hjálpað sér. Ég var ekki sure og nennti ekki að standa í að þurfa að hjálpa of mikið. Ég svaraði því þannig að ég væri bara túristi og gæti eflaust ekki hjálpað henni mikið. Ég hélt sem sagt að hún væri að fara spyrja til vegar. En þá fór hún að tala um að hún væri heimilislaus. GARG....fer í taugarnar á mér. Ég sagði ..sorry...NO...og gekk í burtu. Veit það er harsh....en svona er lífið.

England vs. Argentina var í dag. Snilldar leikur!!! Ótrúlegt hvað hann Wayne Rooney virðist ætla að verða besti leikmaðurinn í heiminum. Allavegana...l8er.

föstudagur, nóvember 11, 2005

Röööössel Kró

Heil og sæl
Bara láta ykkur vita...ég hitti Russell Crowe í dag. Skemmtilegt nokk.

Annars skellti ég mér síðustu helgi upp til Manchester til að sjá besta leik ársins. Djöfull stóðu mínir menn sig vel!!!!

Ég, Skúli, Jón Bjarni, Jónas og Maggi fórum í lest á laugardeginum upp til Manchester þar sem við hittum fyrir þá Sigga og Börk. Við skelltum okkur með Jónasi afmælisbarni á spænskan veitingastað. Þar áttum við staðinn með íslenskum söngvum. Enduðum kvöldið á því að syngja allir sex eins hátt og við gátum íslenska lofsönginn! Það voru æðislegar viðtökur. :-)

Fyrir utan leikvanginn á sunnudeginum var margt um Íslendinginn. Lá við að maður heyrði íslensku hvar sem maður snéri sér. Ég hef aldrei upplifað svona mikla stemningu. Ótrúlegt en satt...lestin á leiðinni til baka var á réttum tíma. Ekki algengt hjá breskum lestum!

Allavegana...slökun þessa helgina og vinna. Gúdd stöff!