Fínasta helgi að líða undir lok og vinna aftur í fyrramálið. En maður gerði alveg ýmislegt aldrei þessu vant.
Á föstudaginn fór ég beint eftir vinnu með vinnufélaga að hitta vini hans. Regina og Melissa vinkona hennar komu líka með okkur og við fengum okkur að borða í China-town áður en við fórum í eitthvað einkapartý á Penthouse klúbbnum við Leicester square. Það er alveg ágætisklúbbur svosem. En við vorum ekkert lengi og ég, Regina og Melissa fórum um miðnætti heim á leið. Þegar heim var komið var eldað quesadilla, spilað á gítar og sungið!
Svo var vaknað snemma á laugardagsmorgun þar sem Heiða systir var að koma í heimsókn yfir Labour Day Weekend í borg lundans. Við skelltum okkur út eftir hádegið og ég dró hana með mér að horfa á Wales vs. England landsleikinn í fótbolta eftir að við höfðum fengið okkur brunch. Svakalega góður gestgjafi.
Um kvöldið var eldað burritos. Greinilegt hver fékk að ráða hvað yrði á boðstólnum. Can't help it....luv'em burritos! Eftir matinn var ákveðið að taka stefnuna á næturklúbb við Victoriu stöðina sem heitir Pacha. Vinkona Reginu sem ég skrifaðu um hérna um daginn (Lyric L) bauð okkur að koma að horfa á vinkonu sína sem er söngkona í danshljómsveit performa þar. Þetta var alveg risastór klúbbur og komum við okkur fyrir á annarri hæðinni sem horfir yfir sviðið og stóra dansgólfið. Svo þegar þau komu á svið ætlaði þakið að rifna af kofanum. Þau fengu alveg svakalegar móttökur enda voru þau nú bara alveg mögnuð. Skemmti mér allavegana mjög vel. Hittum líka kærasta Lyric L sem ég hélt fyrst að væri Shaquille O'neal. Þeir voru ekkert smá líkir nema þessi svona 30 cm minni og heitir Anthony.
Í dag var ég svo dreginn á lappir um hálf tólf leytið. Stefnan var sett á Hampton Court sem er kastali sem á uppruna sinn frá tímum Henry VIII í kringum 1520. Alveg svakalega stórt kvikindi. Alveg magnað. Svo var maður með svona audio tourguide og alles. En mér fannst ein staðreynd alveg mögnuð. Í þessum kastala var alveg svakalega mikið af hermönnum á hverjum tíma sem voru að gæta kóngsins og í raun var ekkert um klósett þarna enda frekar óþekkt fyrirbæri. Þannig að allir gerðu bara sitt úti í horni. Oj bara!
Garðurinn í kringum kastalann var alveg magnaður. Þvílík perla! Gosbrunnur, svanir, extra mjúkt gras, hestvagnar, risastór græn tré sem voru klippt eins og sveppir í laginu o.s.frv. Bara allt til alls þarna. Mæli með þessum stað. Hampton Court!
Allavegana...farinn að sofa!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli