fimmtudagur, júlí 28, 2005

Habib Marwan

...bara láta ykkur vita að ég sá gaur áðan á Oxford Street í nýjum Man. Utd. búningi með nafnið Habib Marwan prentað aftan á. Fyrir þá sem ekki vita þá er Habib Marwan svalasti vondi kall sem sést hefur á sjónvarpsskjám. Já hann er svakalegri en Gordon Gekko úr Wall Street, the Jackal úr The day of the Jackal, John Doe úr Se7en, Barbwire úr samnefndri mynd..nei bíddu hún var góð...æji skittir ekki.

Habib var sem sagt í nýjustu seríunni af 24. Mér líst vel á þennan gaur sem ég sá í bolnum! Hann er greinilega með svipaðan smekk og ég á sjónvarpsefni svo og forgangsröðunina! Svo er hann bara með helvíti svartan húmor að vera með svona yfirlýsingar svo stuttu eftir hryðjuverkaárásirnar hérna.

Hugmynd: Ég fæ mér nýjan Man. Utd. búning og læt prenta aftan á hann --> Jack Bauer. Þá get ég farið að hanga með þessum gaur í löggu og bófa leik? Hvernig hljómar það?

Önnur hugmynd: Allir að skrifa í commenta-kerfið hver sé þeirra uppáhalds vondi kall, tja eða kona sem birst hefur á hvíta tjaldinu.

Annars á ég von á heimsókn frá Íslandi á morgun. Sigrún Bergsdóttir... betur þekkt sem www.sigrunbergs.blogspot.com fær 1 milljón vina stiga fyrir að vera fyrst til að mæta á svæðið. Við ætlum að gera það sama og allir alvöru Íslendingar gera í Don Lon.....GRANDskoða næturlífið og væntanlega versla eitthvað!

Ble.

miðvikudagur, júlí 27, 2005

Lundi á Fimmvörðuhálsi

Ég varð nú bara að deila þessari mynd með ykkur. Ég fékk hana senda í gær frá vini mínum sem gekk með mér yfir Fimmvörðuháls. Þetta er sem sagt uppi á miðjum hálsinum þegar náttúran óumflýjanlega kallaði hjá lundanum!

Takið eftir ótrúlegum díteilum í fótósjopp-vinnslu. It's almost human!

Staaaaaaaaaaaarböööööööööööööökks

Heyrst hefur að Íslendingar í London ætli að taka höndum saman og splæsa í leiguflug með Atlanta frá Luton flugvelli næstkomandi föstudagseftirmiðdag. Áfangastaður skilst mér að sé flugvöllurinn í eyjum. Þetta er á plakötum útum alla Lundúnarborg. Ég að sjálfsögðu skráði mig og er það sem sagt hér með staðfest að lundinn mun ekki vera í Eyjum næstu helgi.......

.....þetta er sem sagt mín leið til að tjá öllum að ég vil vera staddur á Íslandi núna. Tvær ástæður:

1) Verslunarmannahelgin í eyjum hljómar ótrúlega spennandi þetta árið sökum "ekki" góða veðursins sem hefur tröllriðið klakanum Íslandi undanfarið.
2) Það er hundleiðinleg rigning í London núna og ég var að kaupa mér krappí regnhlíf!

Til allra sem eru á leiðinni til Eyja, Akureyrar eða annarra skemmtilegra Versló staða: Góða skemmtun. Vonandi drepið þið sem flestar heilasellur!!! (Já biturleikinn skín í gegn ekki satt? ;-))

Annars hef ég lítið aðhafst síðustu daga. Flestir sem hafa talað mig gegnum msn eða síma ættu að vita að ég hef eignast nýjan vin. Hann heitir Starbucks og fer ég í heimsókn til hans í fáránlega marga klukkutíma á dag. Það er alltaf gaman að kynnast einhverjum nýjum þegar maður finnur að aðilar eiga svo margt sameiginlegt. Þetta er raunin með mig og Starbucks. Svo höfum við einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta. Starbucks vill peningana mína og ég vil pláss til að lesa, hanga á netinu og drekka óendanlega marga karmellu frappuchino með einstaka kaffi/espresso/cappuchino inni á milli.

Afhverju er Starbucks ekki á Íslandi? By the way hvað ætli margir fyrstaárs nemar í Háskólanum í Reykjavík séu búnir að fá þá hugmynd í kúrsinum Stofnun og Rekstur. Ábyggilega enginn...uuuuuuuuuuuuuuu....jú!

Á fóninum: Glassjaw, Dikta, Gary Jules inn á milli þess sem ég held áfram að meiða repeat takkann á iPoddinum mínum á The Mars Volta og Tool. Hverjir eru sammála mér að þau tvö bönd eru bestu hljómsveitir sem til eru í mikinn einbeitingarlestur??? :)

Ble í bili

P.s. Mér finnst að setja ætti í lög að þeir sem keyra á dýr og flýja af vettvangi ættu að vera réttdræpir. Sammála?

mánudagur, júlí 25, 2005

Hádegismatur

Ég fór áðan í makindum mínum að fá mér hádegismat hjá hinni víðfrægu skyndibita keðju McDougals sem á rætur sínar að rekja til fjallahéraða Skotlands. Eitthvað virðist þessi keðja þó vera að svíkja uppruna sinn og er enginn starfsmaður þar í skotapilsum og hefur nafninu verið breytt yfir í McDonalds. En það var ekki það sem ég ætlaði að koma hjá á framfæri.

Það var sem sagt þannig að meðan ég naut þess að gæða mér á dýrindis skosku slátri þar inni fór ég að heyra einhver óhljóð. Ég gat ekki greint hvað þetta var í fyrstu en sá að öllum öðrum háttvirtum gestum staðarins var mjög svo brugðið. Tóku þó nokkrir af þeim að rísa á fætur með bakka sína og hlaupa í burtu. Það fyrsta sem mér flaug í hug var að sjálfsögðu að þarna væri á ferðinni enn einn bjáninn sem langaði að komast á forsíður blaðanna hérna úti fyrir að gera eitthvað sem hann í heimsku sinni telur vera hetjulegt (jájá mjög svo afgerandi afstaða þar á ferð af minni hálfu). Annað kom á daginn þegar ég stóð upp og leit bak við súluna sem var milli mín og þessa sérstaka gests. Um var að ræða eldri konu á að giska sextugt sem var greinilega að berjast við einhver geðræn vandamál sem brotist höfðu fram þarna inni á skoska staðnum. Skosku starfsmennirnir gerðu hvað þeir gátu til að róa hana niður en allt kom fyrir ekki því hún hélt bara áfram að öskra og bylta sér í stólnum sínum. Þrátt fyrir að ég hafi nú vorkennt henni var ég að sama skapi mjög feginn að hún væri ekki öskrandi einhverja frasa á arabísku og dreif mig út og yfir á Starbucks sem var hliðina og fór að lesa.

Anywho.....good times!

sunnudagur, júlí 24, 2005

AC for the polarbearpuffin please!

Helgin var spes!

Á föstudaginn skellti ég mér út á lífið með Reginu, Zoe og einhverjum vinum þeirra.....sem voru allir lögfræðingar. Mér var þá tjáð að það búi einungis lögfræðingar í Islington, ég spurði að sjálfsögðu afhverju??? Svarið var einfalt....Tony Blair átti víst heima hérna. Ég vildi reyndar leiðrétta þá og segja að þetta væri sérdeildis og aldeilis ekki rétt þar sem ég þekki bara bankastráka frá Íslandi sem búa hér. Ég ákvað samt að sleppa því.

Allavegana...kvöldið hófst fremur snemma á íslenskan mælikvarða eða í kringum 5 leytið með mojito drykkjum sem Regina blandaði. Verð að segja að hún lofar góðu sem roommate þar sem þessir mojito-ar voru sko virkilega góðir. Við fórum svo á ítalskan stað sem er í uppáhaldi hjá þeim hérna í Islington. Frekar ódýr en samt góður matur. Ég hafði reyndar komið þangað nokkrum dögum áður og fannst hann bara alveg fáránlega hávær. Gamla góða íslenska fuglabjargið átti sko ekki séns í þennan stað. Anywho...maturinn var góður, var að fá mér spaghetti bolognese í annað skiptið þar frá því að ég kom. Mætti halda að ég sé farinn að sakna móður minnar, sem er eflaust satt!:)

Eftir matinn fórum við á bar sem heiti Kaston Lodge og hittum þar lögfræðingana. Þeir voru búnir að plögga okkur inn á opening night á klúbbi niðrí í Chelsea. Þetta hljómaði allt svakalega vel þannig að við slógum til. Til að gera langa sögu stutta gerðu þeir í brækurnar og loksins þegar við komum að klúbbnum gátum við ekki farið inn sem var ábyggilega fyrir bestu því við spjölluðum við einhverja kalla sem komu þaðan út og þeir sögðu að það sko engin loftkæling þarna inni. Þeir sem þekkja lundann vita að hann fílar sig ekki í of miklum hita og hefur hamskipti við slíkar aðstæður og breytist í polarbearpuffin! Við röltum þá í staðinn í átt að öðrum klúbbi sem þeir áttu að vera plöggaðir á..... en komumst ekki heldur þar inn.....eeeeeeeeeen...... að lokum fórum við á klúbb inni í Soho rétt hjá Piccadilly Circus. Allt þetta umstang var sem sagt útaf því að einn þeirra hafði verið svo góður að gefa konu og dóttur hennar far einhvern tíman í vikunni áður. Það kom svo í ljós að þessi kona var einhver svaka club-promoter og sagði að fyrir greiðann myndi hún redda honum á gestalista + vinir hans. Þessi kona virtist nú ekki hafa nein svaka ítök þegar hún var svo með okkur fyrir utan klúbbana að vesenast sjálf í því að komast inn með sig og 19 ára dóttur sína! Æðislegt uppeldi þar á ferð! :)

Á klúbbnum sem við fórum inn á tók svo einhver gaur á móti okkur og gaf okkur nafnspjald sitt. Hann er sem sagt ítalskur og heitir Lucio Luciano og sérhæfir sig í að sjá um fólk sem kemur inn á svona klúbba. Hann fór með okkur í lyftu upp margar hæðir og benti okkur á borð sem var frátekið fyrir klúbba promoterinn og við mættum nota. Þar inni var nokkuð gaman og flökkuðum við mikið á milli hæða. Lentum á spjalli við tvær stelpur. Það kom svo í ljós að önnur þeirra var barnfóstra hinnar. Mér fannst þetta alveg fáránlega fyndið! En það er gott að ríka fólkið hafi einhvern til að sjá um börnin sín!

Að lokum eftir ágætis kvöld var haldið heim á leið. Ég vaknaði svo gríðarlega ferskur í gær. *hóst* *hóst* Þannig að....ég gerði ekki rass í bala laugardagskvöldið nema smakka kínverskan take-away stað hérna....mæli með honum!

Jæja þetta var helgin mín....hvernig var þín helgi???

Það virðist vera voða vinsælt hjá bloggurum að segja frá því hvað þeir eru að hlusta á þannig að ég ætla ekki að vera neinn eftirbátur þar!

Á fóninum: Nýtt efni frá Dikta, Doves, The Archade Fire og Muse.

P.s. ég er búinn að finna burrito stað hérna. Fattaði það bara þegar ég var alveg að vera búinn með matinn minn að ég hefði getað fengið mér burrito þar!!!! AAAAAAArg

Bæbæ

föstudagur, júlí 22, 2005

Terroristi í bleikum pólóbol???

Jæja dagur 2 í blogheiminum!

Það virðist vera að heimili lundans Lundúnir séu að þróast meira og meira í átt að borg óttans Reykjavík. Hér eru hryðjuverkamenn að störfum alla daga vikunnar. Atvikið í morgun er þó nokkuð nýtt á nálinni. Þegar ég vaknaði áðan var í fréttunum að lögreglan hafi skotið mann sem grunaður var um að hafa sprengju í töskunni sinni á leiðinni í tube-ið. Það fyrsta sem ég hugsaði var, þar sem ég ætlaði mér niður í bæ á kaffihús að lesa, á ég að þora að labba einu sinni með töskuna mína með fartölvunni minni inn á lestarstöðina. Sú ákvörðun var tekin að dressa sig upp eins augljóslega og hægt væri þannig að lögreglan gæti hreinlega ekki trúað því að ég væri terroristi sem hafi fengið þjálfun í Afganistan eða Pakistan. Sjóðandi bleikur pólóbolur, túristastuttbuxur, hvítustu sokkar sem sést hafa norðan alpafjalla og sandalar urðu fyrir valinu. Er séns að terroristi myndi klæða sig solleis? Ég bara spyr. Eftir allar þessar pælingar endaði ég á því að þora ekki í underground-ið og gekk alla leið niður í bæ á tveimur jafnfljótum. Tók um 40 mínútur en það var alveg þess virði þegar ég kom svo inn á starbucks og fékk minn Frappuchino!

En meira um lífið hingað til.....
Á mánudaginn skunduðum ég og Regina í íbúðarleit. Við vorum mjög heppin. Eftir leit í aðeins einn dag þá vorum við búin að finna eina sem við vorum tilbúin að gera tilboð í að leigja. Viti menn.....tilboðið var samþykkt og ef allt gengur eftir þá flytja lundinn og Regina inn í íbúðina þann 30.júlí. Það er mjög fínt þar sem það er laugardagur, og reyndar flestir vinir staddir í eyjum líkamlega....en á himnum andlega, þannig að það er gott að hafa eitthvað fyrir stafni þá helgi til að svekkja sig ekki um of á þeirri skemmtun sem á sér stað á litlu eyjunni undan ströndum Klakans. Vinna hefst svo stundvíslega klukkan 9 1.ágúst á frídegi verslunarmanna.

Pirring vikunnar fá bankastarfsmenn Lundúnarborgar. Það að stofna bankareikning í þessu landi er held ég einn mesti vítahringur sem ég hef heyrt um þú ert ekki stúdenti eða breti. Til þess að leigja íbúð í þessu landi þarftu að hafa bankareikning, og til þess að stofna bankareikning þarftu að hafa fast heimilisfang. Þetta þarftu svo að staðfesta gagnvart hvort öðru þannig að þegar þú stofnar bankareikning verðuru að hafa með þér reikning fyrir einhverjum kostnaði útaf íbúðinni. Rafmagnsreikning, gasreikning, fastlínu reikning o.s.frv. Þessir reikningar verða að vera stílaðir á þitt nafn og greiddir. Þú verður einnig að hafa yfirlit yfir þinn reikning 3 mánuði aftur í tíman til að staðfesta heimilisfangið þitt í heimalandinu þínu. Svo verðuru að hafa staðfestingu á vinnunni þinni og blablablabalbalbalabalb. Allt þetta er til að koma í veg fyrir peningaþvætti............mig langaði nú bara að spyrja þegar ég var að standa í þessu: " Excuse me miss, but do I look like a FUCKING money laundrer???? " Jæja það þýðir ekki að svekkja sig á þessu, sérstaklega þar sem þessu var að lokum reddað.

Annars er föstudagur í dag og neyðist ég því víst til þess að kíkja aðeins út á lífið. Zoe vinkona Reginu er í London og ætla ég útað borða með þeim og einhverjum fleirum. Jon kærasti Reginu sem er mjög skemmtilegur kemur ábyggilega líka með. Hann talar með svona flottum breskum hreim! Anywho.....ætla að reyna að lesa eitthvað áður en ég fer heim að skipta um föt og skella mér út.

PuffHöddí

fimmtudagur, júlí 21, 2005

Rússagull og indverskur pipar

Jæja... þá er kannski kominn tími til að segja frá því hvað lundinn hefur verið að bralla hér í Lundúnum síðustu daga.

Ég kom hingað síðasta laugardag og fór helgin í það að kynnast bjórmenningu landsmanna. Á laugardagskvöldinu kíkti ég með heiðursfólkinu Atla og Ollý, sem hafa verið svo góð að leyfa mér að gista í íbúðinni þeirra síðustu daga, niður í Chelsea að leita að Rússagulli. Því miður fundum við ekkert slíkt en fórum þó á nokkra staði. Á einum þeirra sem var svona kokkteilastaður smakkaði ég alveg svakalega góðan og frískandi vatnsmelónukokkteil. Uppistaðan var sem sagt vatnsmelóna, vodki, sykur og svo eitthvað sem ég sá ekki hvað var. Þeir sem vita hvað þetta leyniglundur var eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram. Á næsta bar var svo teygaður eitt stykki Guiness....mmmmmm.... hann vinnur á við hvern sopa, spurning hvort það sé áfengismagnið?? Kvöldið var þrátt fyrir þetta tekið frekar snemma og skunduðum við heim í kringum miðnætti.

Á sunnudeginum fór ég að hitta Fanneyju vinkonu mína sem var hér á svæðinu. Við hittumst niðri á Oxford Circus og skelltum okkur á einhvern ítalskan veitingastað þar sem við slöfruðum í okkur pasta. Eftir það var stefnan sett á Liverpool Street station þar sem við vorum að fara hitta íslensk/breskan frænda hennar að nafni Damien og vin hans sem heitir Eddie. Þar sem veðrið var svo æðislegt, eða eins og Damien sagði í sífellu: "Un-fucking believeble" eða talaði um veðrið og sagði svo "Fuckin' L", ákváðum við að skella okkur á pöbb þar sem við gátum setið úti á rétt hjá Brick Lane. Pöbbinn heitir Big Chill og var helvíti skemmtilegur. Þar sátum við helvíti lengi og þurftum nokkrum sinnum að skipta um sæti til þess að elta sólina þar sem háar byggingar í kring voru farnar að skyggja allverulega á okkur. Eftir bjórsötur og ráf um markaði þar sem við þurftum að hafa greyið Fanneyju í ól vo hún myndi ekki versla frá sér allt vit var ákveðið að ég skyldi fara á mitt fyrsta indverska veitingahús. Þjónninn okkar þar naut þess, og þá meina ég NAUT þess að ég væri að koma á svona stað í fyrsta sinn. Hann byrjaði á því að skella diski af grænum pepper á borðið og sagði að þetta væri mjög "mild" pepper. Hann sagði mér bara að skella einum í mig og þar sem ég var örlítið kenndur ákvað ég ....tja ákvað.....meira í hugsunarleysi að skella einum upp í mig og hakka hann í mig. Ef ég man rétt þá sönglaði ég McDonalds lagið "I'm Luvin' It" áður en piparinn fór inn fyrir mínar varir. Orð geta ekki líst þeirri vanlíðan sem fylgdi og ég sem algjör amatör í indverskum mat tók að þamba bjórinn minn þegar allir vanir indverjar og wannabe indverjar vita að það er mjólk og myntusúkkulaði sem bjargar þér en annar vökvi gerir ekkert. Ég sem sagt grét eins og nýfætt barn þarna meðan ég beið eftir mjólkinni minni, sem by the way var ekki beint af íslenskum gæðum. Eftir dágóða stund fór mér að líða betur. En sjiiiiiitt þessi matur þeirra getur verið sterkur!

Jæja nóg í bili.
kv.Puff Diddy

Nýtt og ferskt.....

.....blog....önlæk ení oðer ðat jú hev sín!

Puff Hoddí er mættur á svæðið!