Ég var minntur á það í gær að ég hef ekki bloggað síðan ..tja í apríl. Nokkuð magnað það.
Hvað hef ég eiginlega verið að gera?
1) Ég er búinn að búa núna í rúmt eitt ár í London
2) Ég er búinn að flytja í nýja íbúð sem er rétt fyrir norðan Oxford Street
3) Ég er búinn að fara á tónleika með Tool
4) Ég er búinn að fá endalaust af vinum í heimsókn
5) Ég er búinn að vinna alltof mikið og þar af leiðandi sofa alltof lítið
6) Ég er búinn að fresta sumarfríinu mínu núna í þrjár vikur
7) Ég er búinn að fara alltof oft á Cafe Pacific að borða
8) Ég er búinn að fara á tónleika með Jamie Cullum
9) Ég er varla búinn að kaupa mér eina fataflík síðan ég flutti út
Hvað er ég að fara gera?
1) Ég er að fara koma til Íslands einhvern tíman á næstu sjö dögum
takk -
föstudagur, ágúst 18, 2006
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Tileinkað TOOL
Ég ætla aðeins að fá að missa mig þar sem ég hef ekki skrifað neitt hérna lengi!
Fékk nýja TOOL diskinn - 10,000 days - í dag. Hvílíkt og annað eins, hef hlustað í allan dag meðan ég vinn. Eins og venjulega, sem óeðlilegt verður að teljast miðað við hvers konar tónlist er um að ræða, get ég einbeitt mér mun betur. Skil þetta ekki bara. Gleymir sér og heldur takti við vinnu.
Mæli með þessum disk - en hann er ekki fyrir börn, fullorðna, stráka né stelpur. Hann er fyrir aðdáendur TOOL.
"10,000 days in the fire is long enough, you're going home"
"Vicariously, I live while the whole world dies"
Takk takk

mánudagur, mars 06, 2006
sjónvarpsgláp
Maður getur orðið nokkuð súr af því að horfa á sjónvarpið í þessu landi. Ég er til að mynda kominn með þá hugmynd í kollinn að það að gangi í Breska herinn sé ekki svo slæm hugmynd!
Málið er nefnilega það að herinn auglýsir nokkuð grimmt í sjónvarpi og þessar auglýsingar eru ekki slæmar. Þær selja herinn sem mjög góðan stað til að nýta hæfileika þína til hinna ýmsu starfa.
Leiðtoginn - Auglýsingin er sem sagt þannig að fólk er að detta í það að til stimpinga kemur á milli tveggja aðila, svo er klippt og nú er komið á vígvöllinn þar sem "all hell is about to break loose". Aftur er klippt yfir í hitt og þá kemur einn aðili fram og reynir að stilla til friðar - aftur skipt yfir á stríðsvöllinn og sama manneskja er að stilla til friðar.
Þetta var nú bara eitt dæmi - svo er annað þar sem slogan-ið er: You don't have to be a pilot to join the Royal Airforce. Gott slogan það!
Fyrsta blogsfærsla í ár og öld - lofa engu!

sunnudagur, janúar 22, 2006
Fancy a drink? I just got stood up!
Var á leiðinni í Tube-ið áðan þegar að kona um fertugt vatt sér upp að mér og spurði mig að þessu. Að sjálfsögðu skellti ég mér með henni í drykk og við skemmtum okkur konunglega. Hmmm nei það er nú ekki líklegt. Ég gekk bara framhjá henni og hunsaði hana.
Annars er ekki mikið að frétta af mér. Alltaf nóg að gera í vinnunni og unnið flesta daga. Við höfum núna skipt hópnum niður í tvennt og fluttumst ég og Andrew lögfræðingurinn yfir á 3-ju hæðina. Með okkur eru tveir nýjir starfsmenn. Annar þeirra er aðstoðarlögfræðingur og hinn er Gummi. Strákur sem hefur verið að læra viðskiptafræði í Danmörku og verður lærlingur hjá okkur fram á sumar.
Bjarki og Hjördís voru í heimsókn í London yfir helgina en ég náði því miður ekki að eyða miklum tíma með þeim. Glataður gaur.
Á fimmtudaginn koma svo Stefán Bjarni og Halli Steinþórss. Þeir verða fimmtudag til sunnudags og er búist við mikilli bjórrigningu á þeim tíma. Þeir eru að fara til Prag þar sem Halli verður í nokkra mánuði en Stebbi ætlar að kíkja með honum í tvær vikur.
Ég fékk webcam í jólagjöf frá brósa, reyndar gaf hann öllum fjölskyldumeðlimum slíka enda erum við svo alþjóðleg fjölskylda. Skilst að mamma og Heiða systir hafi verið að nota þetta óspart. Ég drullaðist loksins til að láta græjuna upp fyrir nokkrum dögum! Helvítis leti er þetta alltaf hreint.
Er að fara á Chelsea vs. Barcelona 22.feb ásamt góðum hópi af valinkunnumandansmönnum. Það verður gaman. Förum 8 saman. Úff hvað ég hlakka til. Ronaldinho....work your magic!
Manchester United: Til hamingju með sigurinn í dag!
Á fóninum:
Arcade Fire
Madonna
Tool
Kanye West
Í bókinni:
Freakonomics - ágætis bók um skemmtilegar hagfræði pælingar, eins og "Why do drug dealers still live with their mothers?"
Straumhvörf - ekki svo góð bók um útrás íslenskra fyrirtækja. Helst aldrei við lesturinn þegar ég reyni að kíkja í hana
Í download-inu
5-ta sería af 24 - byrjar nokkuð þétt, búinn með 4 fyrstu þættina
OC 3 sería - alltaf gaman af vandamálum ríku krakkanna
Lost 2 sería - Æji ég veit það ekki, jújú þetta er alveg ágætt!
Aðrar pælingar:
Ég held ég færi iPod sounddock-ið upp í vinnu. Er hvort eð er alltaf þar.

þriðjudagur, janúar 03, 2006
Kominn aftur til DonLon
Sæl veriði og gleðilegt nýtt ár
Nú er ég kominn aftur til London eftir stutt stopp heima. Ég vil þakka öllum þeim sem ég hitti á þessum stutta tíma heima fyrir ánægjulegar samverustundir!
Meira var það ekki að sinni....eða jú.... ég er veikur!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)