Magnað! Var á leiðinni heim úr vinnunni áðan í strætóinum og svona nokkrum mínútum áður en við komum að stoppustöðinni minni keyrum við framhjá svakalega mikið af bláum blikkandi ljósum. Þá er það sem sagt sjúkrabíll og 3 löggubílar sem eru staddir við eina strætistoppistöðina. Hliðina á stöðinni stendur alblóðugur gaur (eða mér sýndist hann vera það) og sjúkraliðar að gera að sárum hans meðan lögregluþjónarnir eru greinilega að tala við hann. Þetta er eflaust daglegt brauð hér þannig að strætóinn er nú ekkert að stoppa svo farþegar geti farið að virða aðstæður fyrir sér. Svo þegar ég kem að stöðinni minni og er að fara yfir götuna til að komast að heimilinu mínu sé ég annan löggubíl með bláu blikkandi ljósin á búnir að stoppa einhvern gaur og eru að skipa honum að henda sér í jörðina og læti. Hann var svo handtekinn og færður inn í löggubílinn. Ég sem mikill stórborgarbúi lyfti mér að sjálfsögðu ekkert upp við þetta og hélt bara áfram göngu minni í átt að húsinu mínu....roooooight.....ég starði! En já nokkuð ljóst að ég bý í stórborg en ekki lengur í Vrekjavik (með enskum hreim sko)!
Gaman að þessu.
5 ummæli:
Það heitir að KIPPA sér ekki upp við eitthvað
kveðja, mamma
Hahaha, já láttu hann heyra það, búinn að vera úti í nokkrar vikur og strax farinn að gleyma því ylhýra ástkæra!
I only speak English now on this blog! :)
Það væri mjög fyndið ef þú hefðir ákveðið að lyfta þér upp að þessu tilefni. Skálað í kampavíni og svona.
Jújú ég gerði það að sjálfsögðu. Enda algert tilefni til...finnst þér ekki? :-)
En samt það er alveg magnað hvað maður verður vitni að í svona borg sem þessari. Sver það ég yrði jafn ekki hissa (og myndi jafnvel ekki LYFTA mér upp) við að sjá kjúkling ganga á götu hérna og tala....eða...kannski...jú!
Skrifa ummæli