Fór á Chelsea vs. Aston Villa í gær. Helvítis Chelsea þurfti að vinna! Djöf....
Það sem er kannski skemmtilegra er að ég sat hliðina á Asier del Horno sem er vinstri bakvörður Chelsea að öllu jöfnu en hann er meiddur þessa dagana. Fyrir framan mig sat svo enginn annar en Gianluca Vialli. Gaman af þessu. Á mynd af þeim báðum hliðina á mér sem ég smelli inn við tækifæri. Var aðeins að spjalla við þá en vildi ekki vera hálfvitinn sem væri að biðja um eiginhandaráritun eða uppstillta mynd.
Annars hefur ýmislegt verið að gerast í lífi lundans. Síðustu helgi var hún Berta, Berta rjómaterta í heimsókn og Rabbi félagi minn líka. Við gerðum margt skemmtilegt en það er tvennt sem stendur upp úr. Hið fyrra var þegar Andri Björn kenndi okkur saltstaukadansinn þegar við vorum í ljótudansakeppni. Ég fann reyndar upp einn annan helvíti góðan. Knapadansinn, sem býður upp á svo marga möguleika! Ef þið hittið á mig í 101 hlegina 7. og 8. okt þá hnippið þið bara í mig og ég kenni ykkur! :) Hið seinna er að við skelltum okkur á fótboltaleik hjá stórliðunum Fulham og West Ham. Héldum að sjálfsögðu með West Ham Rabba til stuðnings. Í hálfleik var staðan 0-0 og við frekar svöng þannig að við skelltum okkur í röðina til að fá okkur pulsu. Ég hafði svona ágætistrú á því að um væri að ræða ágætlega ætileg kvikindi. Allavegana...röðin var frekar löng og byrjaði leikurinn aftur áður en það kom að okkur í röðinni og heyrðum við allt í einu svakaleg fagnaðarlæti. Þá voru sem sagt West Ham menn að skora. Við bölvuðum heimsku okkar náttúrulega í sand og ösku en ákváðum að fyrst við vorum nú komin svona langt í röðinni þá væri nú best að klára þetta og fá eitthvað í gogginn. Allt í einu var fagnað aftur. Þá höfðu West Ham menn skorað aftur, og aftur höfðum við misst af því! Við fengum loks pulsurnar okkar sem voru það óætar að ég henti þeim í ruslið! Góð ákvörðun þar. West Ham skoraði ekki meira og ég hélt áfram að vera svangur!
Á þriðjudaginn var svo fagnað úrskurði ákveðinna dómara á Íslandi og á fimmtudaginn fór ég í minn fyrsta alvöru tuxedo dinner! Mega gaman og stefni ég að því að fá mér minn eigin tuxedo við fyrsta tækifæri. Óþægilegt að vera í svona leigðum því hann passar aldrei 100% á þig.
Á fimmtudaginn var Gunni Berg í heimsókn. Skelltum okkur á HK-diner sem er uppáhalds cheap-ass chinese matsölustaðurinn minn. Fengum okkur chili chicken rétt. Ég þurfti sko að tæma stir fried egg rice-ið hjá bæði Gunna og Reginu til að halda mér gangandi. Er ekki með mesta þolið gagnvart sterkum mat.
Annars styttist í heimkomu. Er ekki örugglega verið að plana eitthvað partý fyrir mig þann 7.okt?????
9 ummæli:
Var bloggpressan alveg að buga þig? Ágætis skýrsla.. -eigum við ekki bara að kýla á dinner í Dúfnahólum 10 heimkomuhelgina? sjáum hvað setur.
Pant vera homecoming queen!!
Vertu góður og stattu þig- lovjú
Hehehe ég sit hérna í tíma og hlæ upphátt, sérstaklega þegar ég minnist ljótudansakeppninnar og það að við fórnuðum mörkunum fyrir pullur! Eða í mínu tilviki fyrir pullubrauð. Oj barasta. Skemmti mér ekkert smá vel, takk fyrir mig elskan mín:) Hlakka til að sjá þig á klakanum, tökum góða máltíð á vegó eða e-h og svo náttlega tjútt niðrí bæ:) Kossar og knús.
Vorum við ekki að ræða þetta í gær, þú ert nú alveg ferlegur, maður hefur gaman að hlutunum, ekki gaman af einhverju.
Mér líst vel á dinner í Dúfnahólum 10! Hvað verður í matinn? A vital question from me! :)
Berta - Takk fyrir heimsóknina! Ég mun aldrei aftur fara á fótboltaleik á fastandi maga!!!!
FANNEY!!!! GRRRRRRRRRrrrrrrrrrrrr............. Enga MR-stælar á minni síðu takk fyrir.......hér bara tala slæma íslenska!
HAHAHA Fanney....mamma mín las þetta comment frá þér! Þú hefur rangt fyrir þér. Það er að hafa gaman AF e-u!
In your face....go mommy go mommy!
Vitnum í hana:
"hið rétta er að maður hefur gaman AF einhverju en maður hendir gaman að e-u (sem þýðir að gantast með e-ð)."
Btw... Tuxedo var a midvikudegi ekki fimmtudegi. Isss Hoddi hafa svona hluti a hreinu.
Enda fór ég ekki í MR ;) En mømmur hafa alltaf rétt fyrir sér er thad ekki
Hehehe það er rétt...mummy´s are always right!
bíddu voruði ekki að tala um mömmur? Eða hafa kannski múmíur líka alltaf rétt fyrir sér? ;)
Skrifa ummæli