mánudagur, ágúst 08, 2005

Skoskir sideburns og salsa frá Equador

Jæja þá er enn einni helginni lokið. Eftir vinnu á föstudaginn var eldað spaghetti bolognese í Drake House. Þvílík snilld. Var ekki búinn að fá spaghetti í heilar tvær vikur held ég. Það getur verið lífshættulegt þar sem allir heilvita menn vita að lundi þrífst á slíkri fæðu!

Hitti svo Atla, Ollý og Davíð seinna um kvöldið. Þau voru með Telmu úr HR og Hörð Tottenham mann með meiru í heimsókn. Telma og Hörður voru að fara á Tottenham vs. Porto á laugardag og svo á Charity shield leikinn í gær. Snilli föstudagskvöldsins var samt sem áður skoskur vinur hans Davíðs. Þvílíkur nagli! Með alvöru breska barta! Langaði að segja við hann: "Heyrðu vinur, U should seriously reconsider the size of your sideburns." (Já ég myndi blanda saman íslenskunni og enskunni!) Topp náungi!

Á laugardaginn var ég dreginn á fætur og út að skokka af room-mate-inum. Lundar eru ekki mikið fyrir langflug og eru vanir að hvíla sig inn á milli með því að setjast í ölduganginn. Þetta einkenndi þetta fyrsta útihlaup okkar Reginu....vægast sagt. Ég heyrði orðin: "U can do it" í gríð og erg! Ég er ennþá með harðsperrur í rassvöðvunum. Hver þurfti að finna um harðsperrur????

Svo var farið í búðarleiðangur að reyna kaupa það sem ennþá vantaði í íbúðina. Ég fann mér dýrindis sængurföt...bíddu....þetta er hundleiðinlegt umræðuefni....moving on...

Alþjóðagrillveisla hjá Jon kærasta Reginu var næst á dagskrá. 2 frá Equador, 1 frá Spáni, 1 frá Indlandi/USA, 1 frá Japan/Sviss, 2 frá Bretar, 2 frá Hollandi og svo eitt kvikindi frá Íslandi. Jon fær hrós fyrir mikinn og góðan mat. Kvöldið endaði svo með miklum salsa tilþrifum hjá Sebastian og Alonso frá Equador og var kennsla þeirra með mjög góð. Bráðlega mun lundinn sjást á klúbbi líkt í myndinni Along Came Polly þar sem Ben Stiller, taktlaus með eindæmum, fer og lærir salsa og brillerar svo á salsaklúbbi!

Regina fór í vinnuferð til annarar heimsálfu í dag og kemur ekki fyrr en á föstudaginn sem þýðir að ég þarf að elda sjálfur ofan í mig alla vikuna. Ég spái því að ég muni komast í náið samband við skyndibita og take out mat Lundúnarborgar.

"Það er gott að geta komist í náið samband, við náttúrunnar leyndardóma!!" Hvaða lag og flytjandi?

Good stuff.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Leiðrétting!!

Það er gott að eiga kost á því
að geta komist í náið samband
við náttúrunnar leyndardóma.

Frelsið og Björn Jörundur

kv.
Arna ;)

HLH-flokkurinn sagði...

AHAHAHAHAHAHA þú ert alveg steikt! HAHAHAHA....fyrir þá sem vilja vita þá er Jon stytting á Jonathan og því er ekkert H í Jon!

Góð Arna. Biðst afsökunar á rangfærslu í framsetningu á texta!

Nafnlaus sagði...

mig langaði að heyra meira um sængurfötin.. keyptiru utan um?? hvað með stofustáss?? Harrods? Í þessum skrifuðu orðum var ég að horfa á máv klessa á húsið þitt- BAHAHAHA!!!!!! blegjéC

Nafnlaus sagði...

Mjer skilst að sideburns sjeu nefndir eftir einhverjum andskotans hershöfðingja sem var einhvers konar brautryðjandi eða frumkvöðull í því að vera með stóra barta og hjet eftirnafninu Burnside.

qjairhr qwethya,
Önundr.

Mokki litli sagði...

Ég mæli með Take That mat Lundúnaborgar.

HLH-flokkurinn sagði...

Mig langar í asian mat í kvöld. Held mar komi við á HK Diner í China Town á leiðinni heim á eftir. Það er alveg mean shredded chicken with fried rice eða chili kjúlli þar!

Nafnlaus sagði...

Þér er boðið í partí til mín í kvöld klukkan 21:00.
Veit að þú þykist vera í London og komist ekki, en ég veit, þú veist og allir vita að Nonni Ásgeir á einkaþotu. Don´t take no for an answer.

Ble gjé,

arnarbents aka snæfeld.

Nafnlaus sagði...

Svo komast lundar heldur ekki á dikta tónleika í kvöld- slöppUR löppur...

HLH-flokkurinn sagði...

Heyrðu ég mæti. Ekki spurning!

Glatað að beila á Diktu tónleikum!!!!