Komiði sæl! Lundi heiti ég og þetta er víst bloggsíðan mín. Kannski ég fari nú aðeins að sinna henni.
Ýmislegt hef ég nú gert undanfarið frá því að ég bloggaði síðast. Toppurinn held ég samt sem áður að sé þegar mér tókst loks að fá wireless internetið í gang hérna á heimilinu. Mikill munur. Takk Haffi fyrir aðstoðina og til hamingju með afmælið 21.ágúst.
En já ég skellti mér á fótboltaleik um daginn með samstarfsfólki. Það var magnað. Chelsea vs. WBA sem var mikill markaleikur. Gaman að skella sér svona á völlinn. Hef bara einu sinni áður farið og það var á markalausann leik Man Utd vs. Arsenal. Það er alveg magnað að hlusta á alla aðdáendur Chelsea öskra: Champions, Champions alveg hástöfum. Þvílík læti!
Eftir leikinn vildu allir fara að dansa þannig að ferðinni var heitið upp í Notting Hill á klúbb rétt hjá Notting Hill Gate. Það var mjög gaman þar inni en það er þó tvennt sem mér langar að nefna sem mér fannst frekar fyndið. Á fóninum var fínasta dans músík, DJ-inn alveg að standa sig, en á veggjunum útum allt var verið að varpa myndum af villtu dýralífi. WHY? Ljón að elta uppi bráð, öldugangur á strönd, höfrungar að synda, selir (ekki Benedikt Ólafsson :) ) að stinga hausnum upp úr sjónum...hvað var það! Hitt var samkynhneigði maðurinn í eintómum hvítum fatnaði sem kom upp að mér í röð á klóstið (nota bene karlaklóstið bilað, allir nota kvennaklóstið) og sagðist vera dama og því ætti hann að fá að vera á undan mér í röðinni. Ég meig næstum á mig á staðnum af hlátri!
Mismikið hefur verið að gera í vinnunni undanfarið en það breytist að öllum líkindum í næstu viku. Eða svo segir dagatalið mér!
Mikið hrikalega er ég orðinn spenntur að heyra fullgerðan disk frá hljómsveitinni Dikta. Held ég að gagnrýnendurnir allir (já allir þessi fáir) heima á klaka eigi eftir að lofsyngja hann. Allavega miðað við þau lög sem ég hef heyrt. Haugur, nei ég meina Haukur röddin þín hefur vaxið svakalega! Held að skeggið þitt hafi mikið um það að segja, eða er það kannski síða hárið hans Nonna....tja allavegana annað hvort er það! :) Keep up the good work! Þarf ég nokkuð að taka það fram að ég heimta að fá eitt stykki sent með tja.......hraðpósti um leið og tök eru á! Og hvenær kemur nýja Tool platan út.....getur einhver sagt mér það???
Um þessa helgi er carnival í gangi í Notting Hill. Stendur fram á mánudag þar sem það er bank holiday í borg lundans. Valið stendur því á milli að sofa út (jebbs.....það væri nú gott) eða skella sér með Reginu og Melissu vinkonu hennar inn í Notting Hill. Jesús veit ekki hvort ég nenni í mannfjöldann! Reyndar var aðili sem ég hitti að reyna segja mér frá góðum stað til að fara á eftir hádegið á mánudeginum og hanga fram á kvöldið. Mér fannst samt bara svo fyndið hvernig hann útskýrði það. "When you get through all the mass of people, which is really hard, and get all the way to the back of the bar, you will have a good time. Actually the crowd there doesn't get any smaller, but it's still a good time." Hljómar eins og kremja fyrir mér....á ég að skella mér?
Ég er búinn að finna mér nýjan stað til að horfa á fótbolta!!! :) Það er lítill ítalskur (reyndar er hann stærri en ég hélt) veitingastaður hérna hinum megin við götuna. Never in a million years hefði ég haldið að þessi búlla væri með Sky Sports! Allavegana þannig að ég skellti mér í dag að horfa á Man Utd vinna Newcastle. Helvíti gott og svo getur mar fengið hræódýrt spaghetti bolognese þar, sem er alveg á topp 5 listanum yfir uppáhaldsmat hjá mér. Reyndar eru þjónarnir alveg steiktir, banna manni að vera með fæturnar uppi á öðrum stól sem er við borðið. Hvað er það, ekki eins og það sé von á Prinsinum af Wales inn í þessu búllu.
Þegar ég tek strætóinn á hverjum degi fer ég framhjá öllu því helsta sem túristinn í London vill sjá. Reyndar skil ég ekki afhverju terroristar völdu ekki þessa tilteknu strætóleið. Fer framhjá Westminster Abbey, Big Ben, Whitehall, Downing Street, Scotland Yard(held ég), Trafalgar Square, Piccadilly Circus, Regent Street og endar á Oxford Circus. Getur þetta verið eitthvað meira túristalegt??? Allavegana, fyrir utan Westminster er aðili sem er búinn að vera þar að mótmæla veru Breta í Írak í ég veit ekki hvað langan tíma. Þingið reyndi meira að segja að setja lög til að meina honum að vera þar að mótmæla. Lögfræðingar mótmælandans fundu bara glufur í lögunum þannig að það má ekki reka hann í burtu. Helvíti fyndið. Hann er sem sagt búinn að þekja (veit ekki hvaða orð ég á að nota hérna) eina hlið á Parliament Square sem snýr að Westminster með fánum og fullt af svona anti-War dóti. Hann er svo með rúm á einum endanum og oft þegar ég er á heimleið í strætó úr vinnunni þá sé ég hann liggja á þessu rúmi sofandi. Hann hlýtur að vera með bestu eyrnatappa í heiminum þessi maður. Hvernig gæti hann annars sofið þarna undir berum himni? Það fara svona u.þ.b. 30 strætóar framhjá honum á klukkutíma + öll önnur umferð sem er mikil meira að segja á næturna. My point is this, whatever he's using, I want it!
Hún María vinkona sendi mér skemmtilegan póst um daginn sem eflaust margir fengu með einhverjum svona skemmtilegum pælingum (tja eða heimskum pælingum frekar). Mér fannst sumt af þessu alveg endalaust fyndið og verð að deila þeim sem mér fannst skemmtilegastar með ykkur:
Fyrst það eru björgunarvesti undir sætum í flugvélum, ætli það séu fallhlífar undir sætum í Akraborginni?
Ef þú ert í farartæki sem ferðast á ljóshraða og kveikir ljósin, hvað gerist?
Afhverju er kattarmatur ekki með músabragði?
Ef geðklofi hótar að fremja sjálfsmorð, er litið á það eins og hann hafi tekið gísl?
Jæja nóg af bulli. Skal fara öpdeita mor fríkventlí og kannski setja inn myndir (á reyndar engar , skal fara taka einhverjar) og svo link-a.
P.s. Celebrity-arnir sem ég er búinn að hitta á eru orðnir tveir! George Graham fótboltaframkvæmdarstjóri(einhverjir Arsenal aðdáendur vildu nú að ég myndi sparka í hann, kannski gott ég gerði það ekki) og hinn er Jamie Redknapp fyrrum knattspyrnuhetja og núna commentator á Sky Sports.
3 ummæli:
já ég á þetta skilið. Hef ekki verið nægjanlega duglegur að taka myndir og uppfæra síðuna!
Skal sko fara að bæta mig. Lofa að það koma myndir eftir næstu helgi þegar systa kemur í heimsókn.
Þú og þín camera eigið líka bara bágt! Hún er límd við hendina á þér!!!! hehehehehehe Og svo takið þið nú lítið annað en myndir af ykkur sjálfum! HAHAHAHAHAHA
Jú jú má sosum vel vera. En mér finnst myndirnar alltaf verða betri ef ég er á þeim!!!! HAHAHAHA *hóst* *hóst* Módelið Lundi
Skrifa ummæli