mánudagur, ágúst 29, 2005

It's DARE

Rosalega er gott að sofa út á frídegi. Reyndi að sofa bara sem lengst = ég sofna aldrei í nótt.

Á fóninum þessa dagana er hin nýja magnaða plata Gorillaz, Demon Days. Snilld! Er orðinn það hooked á henni að nýji hringitóninn í símanum mínum er lagið Dare af plötunni. Alger snilld.

It's DARE!

Annars stefni ég á að kíkja á klakann yfir helgina 8. og 9. október. Skella mér niður í 101 og í eitt stykki brúðkaup. Auðvitað ætla ég líka að hitta mömmu og pabba og gefa þeim knús. Vonandi kemst mar bara. Væri gaman að hitta á sem flesta. So ....allir að senda mér meil með plönum fyrir þá helgi! hordur@youknowwhat.com.

Fyrst Heiða systir fór að tala um heimilislaust fólk á sínu bloggi ( www.alfheidur.blogspot.com ) verð ég aðeins að segja ykkur frá þeim sem eru hérna í borg lundans. Eitt get ég sagt, þeir eru ekki alveg jafn skemmtilegir og í New York og hvað þá San Francisco. Lenti einmitt í því í dag að það var eitt stykkið bert að ofan beint hliðina á Oxford Circus og á táslunum að taka teygjur og vinka konum sem gengu framhjá. Skil ekki að hann hafi ekki hösstlað! Svo gekk ég aðeins niður Regent Street til að taka strætóinn minn og hliðina á stoppistöðinni var annað stykki bert að ofan sem sat á jörðinni með teppi yfir fótunum. Hann var að éta einhverjar hnetur og bettlandi. Ég tók eftir því að þegar einhver myndarleg gekk framhjá honum breytti hann um tón og út kom "Hey BABY, spare some change" eða eitthvað álíka. Til hvers? Heldur hann að hann fái eitthvað frekar einhvern pening ef hann "hits them with a golden hammer"? Ekki það að þetta sé nú einhver gullhamar sem hann sló þær með! Eða hélt hann kannski að hann væri að hösstla bara? Flestar ignore-uðu nú þetta allt saman en þó kom að því að ein þeirra sneri sér við og sýndi löngutöng og hrópaði "Tosser" í áttina að honum. Frekar fyndið. Allavegana, sem sagt ekki jafn skemmtilegir heimilislausir í London og í USA. Eða tja..jújú ágætis afþreying meðan maður bíður eftir flotta rauða bílnum sínum!

L8er

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Bleessaður...

..þetta er semsagt ekki höstl saga af þér kallinn?

HLH-flokkurinn sagði...

hahahahaha góður! Nei en ég hef heyrt undanfarið að þú hafir verið að reyna þessa taktík niðrí 101 Reykjavík! :)

Nafnlaus sagði...

Tsssss... að heyra þessa vitleysu.

Ég svosem tilkynnt þér það að dömurnar liggja flatar fyrir þessari taktík, mæli með að þú reynir hana á Trafalgar kassa.

Nafnlaus sagði...

það vantar auðvitað eitt "get" þarna í kommentið!

HLH-flokkurinn sagði...

hemm hemm.....uuuu....tja....uuuu...tja veistu...uuuu...tja...bíddu er að...hmmm hugsa...hmmm ..uuu...NEI! hehehe en þér er velkomið að gera það næst þegar þú kemur í heimsókn og ég skal með glöðu geði horfa á! :)

Nafnlaus sagði...

ekki málið, ég ætla að þykjast vera baguette