....og þar með lýkur fyrstu vinnuvikunni minni í nýju vinnunni. Búinn að læra margt nýtt og hefur það verið svakalega skemmtilegt.
Í gærkveldi skellti ég mér út með Reginu og vinum hennar. Stefnan var tekin á tónleika sem vinkona hennar úr körfuboltanum var að halda á bar uppi í Notting Hill. Við hófum reyndar kvöldið á hamborgarastað sem heitir Gurmet Burger Kitchen. Þar fengum við að ég held stærstu hamborgara sem ég hef séð á minni ævi.....og já ég er ekki í USA!!!! Eftir það röltum við yfir á barinn sem var norðanlega á Portobello Road. Það er sem sagt gatan sem markaðurinn er alltaf á og sást vel í Notting Hill. Þetta var mjög skemmtilegur staður. Lítill og með litlu sviði. En það er sem sagt alltaf live tónlist þar, í hverri viku á miðvikudögum og fimmtudögum. ALLAVEGANA....vinkona Reginu kallar sig Lyric L og var satt best að segja bara alveg frábær! Tónlistin hennar sem er að öllu samin af henni er blanda af hip hop og jazzi. Hljóðfæraleikararnir hennar voru líka alveg geðveikir. Jæja skemmtilegt kvöld.
L8ez
3 ummæli:
Hey jó Kansas City!
Hvernig gengur að ná THE british accent?
Miðað við svakalegan amerískan hreim þinn (which I fancy ;))þá held ég að við séum alveg að tala um hátt í 1 ár þangað til breskan fer að fljóta út um munninn á þér.
Ekki verða posh, kick it Ali G Style.
aaaaaaaaaaaaaaaaight?
Hahaha ég verð nú seint kallaður POSH....I always keep it tight...AAAAAAAIIIIIIGHT!
Ég held að nokkur bresk orð séu farin að læðast inn á milli annarra en samt ekkert alvarlegt.
Skrifa ummæli