Heyrst hefur að Íslendingar í London ætli að taka höndum saman og splæsa í leiguflug með Atlanta frá Luton flugvelli næstkomandi föstudagseftirmiðdag. Áfangastaður skilst mér að sé flugvöllurinn í eyjum. Þetta er á plakötum útum alla Lundúnarborg. Ég að sjálfsögðu skráði mig og er það sem sagt hér með staðfest að lundinn mun ekki vera í Eyjum næstu helgi.......
.....þetta er sem sagt mín leið til að tjá öllum að ég vil vera staddur á Íslandi núna. Tvær ástæður:
1) Verslunarmannahelgin í eyjum hljómar ótrúlega spennandi þetta árið sökum "ekki" góða veðursins sem hefur tröllriðið klakanum Íslandi undanfarið.
2) Það er hundleiðinleg rigning í London núna og ég var að kaupa mér krappí regnhlíf!
Til allra sem eru á leiðinni til Eyja, Akureyrar eða annarra skemmtilegra Versló staða: Góða skemmtun. Vonandi drepið þið sem flestar heilasellur!!! (Já biturleikinn skín í gegn ekki satt? ;-))
Annars hef ég lítið aðhafst síðustu daga. Flestir sem hafa talað mig gegnum msn eða síma ættu að vita að ég hef eignast nýjan vin. Hann heitir Starbucks og fer ég í heimsókn til hans í fáránlega marga klukkutíma á dag. Það er alltaf gaman að kynnast einhverjum nýjum þegar maður finnur að aðilar eiga svo margt sameiginlegt. Þetta er raunin með mig og Starbucks. Svo höfum við einnig sameiginlegra hagsmuna að gæta. Starbucks vill peningana mína og ég vil pláss til að lesa, hanga á netinu og drekka óendanlega marga karmellu frappuchino með einstaka kaffi/espresso/cappuchino inni á milli.
Afhverju er Starbucks ekki á Íslandi? By the way hvað ætli margir fyrstaárs nemar í Háskólanum í Reykjavík séu búnir að fá þá hugmynd í kúrsinum Stofnun og Rekstur. Ábyggilega enginn...uuuuuuuuuuuuuuu....jú!
Á fóninum: Glassjaw, Dikta, Gary Jules inn á milli þess sem ég held áfram að meiða repeat takkann á iPoddinum mínum á The Mars Volta og Tool. Hverjir eru sammála mér að þau tvö bönd eru bestu hljómsveitir sem til eru í mikinn einbeitingarlestur??? :)
Ble í bili
P.s. Mér finnst að setja ætti í lög að þeir sem keyra á dýr og flýja af vettvangi ættu að vera réttdræpir. Sammála?
9 ummæli:
JÁHÁ !!
Mjög sammála
Býð mig hér fram til að drepa svoleiðis lið fyrir alla sem þurfa á því að halda :@
(á sko haglara)
Maggss
You're FIRED....nei meina HIRED!!!! Ertu til í að vinna í þessu starfi fyrir minimum wage?
þetta lið er samt bara alveg óþolandi...getur ekki tekið á afleiðingum gjörða sinna þannig að það hypjar sig bara í burtu!!!! Þá má þá líka bara hypja sig af landi brott.
biturleiki.is
Haldiði að fólk keyri viljandi á dýrin eða? Er ekki skárra að drepa kött en fá bíl aftan á þig og drepast kanski sjálfur?? pæling....
Og flýja af vettfangi...... ertu þá að meina að maður eigi að taka kraminn köttinn upp og jarða hann? hmmm....
Annars bið ég bara að heilsa þér Höddsi minn, heyri örugglega lítið í þér næstu daga því ég er að fara til Spánar í fyrramálið. En til hamingu með íbúðina á laugardaginn og gangi þér vel á mánudaginn dúllusmúllann mín í nýju fínu vinnunni:) Kossar&knús
veistu að það fer allt eftir því hvaða dýr um ræðir, ef þetta er t.d. kind þá áttu helst að keyra yfir hana aftur til að vera viss um að hún sé örugglega dauð. binda hana aftan í bílinn og draga hana á túnið hjá bóndanum sem á hana og skilja hana eftir þar !
starSUCKS!!! Veistu hvað þetta skítakompaní hefur eyðilagt marga kaffibaunaakra í Afríku og þ.a.l. margar fjölkyldur og fyrirvinnur þeirra?? Stop this madness og farðu eitthvert annað.
Berta: Í þessu tilfelli var um að ræða að einhver miskunasamur samverji gekk framhjá kettinum sem var ekki látinn og kom honum til dýralæknis sem gat gert að sárunum.
Með það að keyra yfir dýrið til að forðast árekstur er annað en að flýja svo af vettvangi. Þú veist það alveg. Ef þú keyrir á dýr þar sem þú varst að reyna forðast árekstur áttu samt að fara út athuga með dýrið. Hugsaðu þetta út frá Monsu.
Góða ferð/skemmtun í fríinu og hafðu það gott!
Litla systir....a.k.a. HMG: Veistu ég held ég bara geti það ekki. I've been sucked into the spiderweb. I'm the devil's advocate and I like their coffeeeeeeee! HEHE :) SOOOOOvvy
Hvert annað á ég að fara fyrir þægilega lesaðstöðu og óviðjafnalegan caramel frappuchino???:(
heheheheh djöfull er ég ánægður með Sæbó og þessar djö$%& kindur... þetta er án efa heimskasta dýr í heimi... Nema kannski svarti kötturinn sem ég á ...úffff hvað það loðna stykki er vittlaust....hann myndi örugglega reyna að fara í rökræður við kindurnar um hvor vatn væri blautt eða ekki.... jæja líf og fjör ... P.s. Loðið og segir "me" = Grænt ljós....
Skrifa ummæli