Jæja... þá er kannski kominn tími til að segja frá því hvað lundinn hefur verið að bralla hér í Lundúnum síðustu daga.
Ég kom hingað síðasta laugardag og fór helgin í það að kynnast bjórmenningu landsmanna. Á laugardagskvöldinu kíkti ég með heiðursfólkinu Atla og Ollý, sem hafa verið svo góð að leyfa mér að gista í íbúðinni þeirra síðustu daga, niður í Chelsea að leita að Rússagulli. Því miður fundum við ekkert slíkt en fórum þó á nokkra staði. Á einum þeirra sem var svona kokkteilastaður smakkaði ég alveg svakalega góðan og frískandi vatnsmelónukokkteil. Uppistaðan var sem sagt vatnsmelóna, vodki, sykur og svo eitthvað sem ég sá ekki hvað var. Þeir sem vita hvað þetta leyniglundur var eru vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram. Á næsta bar var svo teygaður eitt stykki Guiness....mmmmmm.... hann vinnur á við hvern sopa, spurning hvort það sé áfengismagnið?? Kvöldið var þrátt fyrir þetta tekið frekar snemma og skunduðum við heim í kringum miðnætti.
Á sunnudeginum fór ég að hitta Fanneyju vinkonu mína sem var hér á svæðinu. Við hittumst niðri á Oxford Circus og skelltum okkur á einhvern ítalskan veitingastað þar sem við slöfruðum í okkur pasta. Eftir það var stefnan sett á Liverpool Street station þar sem við vorum að fara hitta íslensk/breskan frænda hennar að nafni Damien og vin hans sem heitir Eddie. Þar sem veðrið var svo æðislegt, eða eins og Damien sagði í sífellu: "Un-fucking believeble" eða talaði um veðrið og sagði svo "Fuckin' L", ákváðum við að skella okkur á pöbb þar sem við gátum setið úti á rétt hjá Brick Lane. Pöbbinn heitir Big Chill og var helvíti skemmtilegur. Þar sátum við helvíti lengi og þurftum nokkrum sinnum að skipta um sæti til þess að elta sólina þar sem háar byggingar í kring voru farnar að skyggja allverulega á okkur. Eftir bjórsötur og ráf um markaði þar sem við þurftum að hafa greyið Fanneyju í ól vo hún myndi ekki versla frá sér allt vit var ákveðið að ég skyldi fara á mitt fyrsta indverska veitingahús. Þjónninn okkar þar naut þess, og þá meina ég NAUT þess að ég væri að koma á svona stað í fyrsta sinn. Hann byrjaði á því að skella diski af grænum pepper á borðið og sagði að þetta væri mjög "mild" pepper. Hann sagði mér bara að skella einum í mig og þar sem ég var örlítið kenndur ákvað ég ....tja ákvað.....meira í hugsunarleysi að skella einum upp í mig og hakka hann í mig. Ef ég man rétt þá sönglaði ég McDonalds lagið "I'm Luvin' It" áður en piparinn fór inn fyrir mínar varir. Orð geta ekki líst þeirri vanlíðan sem fylgdi og ég sem algjör amatör í indverskum mat tók að þamba bjórinn minn þegar allir vanir indverjar og wannabe indverjar vita að það er mjólk og myntusúkkulaði sem bjargar þér en annar vökvi gerir ekkert. Ég sem sagt grét eins og nýfætt barn þarna meðan ég beið eftir mjólkinni minni, sem by the way var ekki beint af íslenskum gæðum. Eftir dágóða stund fór mér að líða betur. En sjiiiiiitt þessi matur þeirra getur verið sterkur!
Jæja nóg í bili.
kv.Puff Diddy
11 ummæli:
Frábært að þú sért byrjaður að blogga Hörður minn :) Hlakka til að fylgjast með þér og hvað þú ert að bralla í London. Strax byrjuð að sakna þín:(( Take care sskan;)
Lísa
Er það ekki bara Japanskur næst og smella sér í smá WASABI tjiiiiiilllll
KtotheA
jóoooooooo
aldrei að treysta indverjum sem segja "mild" maður brennir sig bara á því einu sinni
HAhahahaha ég er ekki einu sinni að fara vinna við afleiður... :)
Hahahaha, chilliátið var brill :) Hélt ég myndi pissa í mig af hlátri að sjá þig iðandi í stólnum að berjast við að halda aftur af tárunum og svo sötrandi jógúrtdrykk með röri eins og ungabarn :D
Engu að síður takk fyrir síðast.
Það er oftast sett fersk mynta eða basilíka í svona vatnsmelónukokkteila. Las það í gestgjafanum.
Í FYRSTA SINN Á INDVERSKAN STAÐ??? ó mæ sko. Ég get borðað mildan indverskan mat... þetta er bara spurning um æfingu (eða hvað maður er kominn með lamaða bragðlauka)
Æji já ég er ekki beint mjög vanur svona svakalega sterkum mat......eða öllu heldur ekki svo sterkum mat...fer eftir því hver á í hlut! :)
Hæ kroppur
Djöfull er ég ánægð með að þú sért farinn að blogga !!
Og ég vissi að maginn í þér ætti eftir að koma þér í vandræði :p
Keep up the good work rjómabangsi.
Luv
Maggss
maður brennir sig reyndar tvisvar á svona indverja-dóti. Þegar það fer uppí þig og þegar fer niður!
HAHAHAHAHAHAHAHAHA :)
Skrifa ummæli