fimmtudagur, júlí 28, 2005

Habib Marwan

...bara láta ykkur vita að ég sá gaur áðan á Oxford Street í nýjum Man. Utd. búningi með nafnið Habib Marwan prentað aftan á. Fyrir þá sem ekki vita þá er Habib Marwan svalasti vondi kall sem sést hefur á sjónvarpsskjám. Já hann er svakalegri en Gordon Gekko úr Wall Street, the Jackal úr The day of the Jackal, John Doe úr Se7en, Barbwire úr samnefndri mynd..nei bíddu hún var góð...æji skittir ekki.

Habib var sem sagt í nýjustu seríunni af 24. Mér líst vel á þennan gaur sem ég sá í bolnum! Hann er greinilega með svipaðan smekk og ég á sjónvarpsefni svo og forgangsröðunina! Svo er hann bara með helvíti svartan húmor að vera með svona yfirlýsingar svo stuttu eftir hryðjuverkaárásirnar hérna.

Hugmynd: Ég fæ mér nýjan Man. Utd. búning og læt prenta aftan á hann --> Jack Bauer. Þá get ég farið að hanga með þessum gaur í löggu og bófa leik? Hvernig hljómar það?

Önnur hugmynd: Allir að skrifa í commenta-kerfið hver sé þeirra uppáhalds vondi kall, tja eða kona sem birst hefur á hvíta tjaldinu.

Annars á ég von á heimsókn frá Íslandi á morgun. Sigrún Bergsdóttir... betur þekkt sem www.sigrunbergs.blogspot.com fær 1 milljón vina stiga fyrir að vera fyrst til að mæta á svæðið. Við ætlum að gera það sama og allir alvöru Íslendingar gera í Don Lon.....GRANDskoða næturlífið og væntanlega versla eitthvað!

Ble.

18 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Massa bad gæ er : The Sherrif Of Nottingham í Robin Hood: Men in tights.... hehehe

HLH-flokkurinn sagði...

Dear, hunting the forrest kings no AHAHHAHAHA

No dear hunting in the kings forrest

Nafnlaus sagði...

þið getið líka farið í kyss kyss og út af!! vondi kallinn í Face off; Nicolas Cage/ Travolta... held að við séum eina fólkið í heiminum sem fannst sú mynd góð.... I mean they took his face OFF!!

HLH-flokkurinn sagði...

Já við höfðum nú gaman af henni. Hann var líka svona tvöfaldur vondi kall þannig að hann hefur eila smá svona auka advantage ekki satt?

Nafnlaus sagði...

Állöggan í Terminator 2, man ekki með neinu móti hvað pésinn heitir.
En fyrirgefðu góðan daginn, veit nú ekki betur en að ég hafi verið fyrst til að mæta á svæðið, allavega innan sviga ;) Hvað fæ ég mörg vinastig fyrir að hafa svo til tekið á móti þér í London????? :D

HLH-flokkurinn sagði...

HAHAHAHAHAHA Soooovvý....... þú varst nú samt ekki beint að koma í þeim tilgangi til London að kíkja í heimsókn til mín. En já þú færð jafnmörg vinastig og Sigrún fyrir þitt framlag líka! :)Síðan færðu náttla aukastig fyrir að hafa kannski kynnt mig fyrir fyrstu bresku vinunum! hehehe

Nafnlaus sagði...

arnold "governor (með hreim)" í batman þegar hann er frystikallinn....jafn svalur vondi kall er ekki til.....FREEZZZZEEEEE

Nafnlaus sagði...

Christofer Walken í True Romance var bad-ass MF.

Nafnlaus sagði...

það þarf nú ekki einu sinni að rífast um þetta sko. langversti vondi kallinn er MojoJojo apinn í Powerpuffgirls. ef þið flettið upp vondur vondikall í orðabók þá er mynd af honum !

HLH-flokkurinn sagði...

Nei lundinn. Hinn eini sanni lendir eftir kannski 2 vikur. Ákvað að það væri betra að hann fengi sinn eigin kassa. Freeee from anyhing. Mamma ætlar að redda þessu fyrir mig. Frauðplastkúlur, bylgjupappír...you name it. Læt hana senda hann beint á skrifstofuna! ;)

HLH-flokkurinn sagði...

Er Kevin Spacey þá ekki bara the ultimate vondi gaur? Hann er kominn með tvö atkvæðia hérna.

Nafnlaus sagði...

Mér fannst Al Pacino í Devils Advocate vera svaðalega nettur þó myndin hafi kannski ekki verið sú besta...

HLH-flokkurinn sagði...

Hvada vitleysa....myndin var ad minu mati alveg fin! Naestum allar myndir med AP er godar! Madurinn er gud!

Nafnlaus sagði...

Scar (Jeremy Irons) - Lion King

Nafnlaus sagði...

og Hannibal Lecter

Nafnlaus sagði...

Tony Montana (Scarface) klárlega!

"I kill a communist for fun, but for a green card, I gonna carve him up real nice."

"You wanna fuck with me? Okay. You wanna play rough? Okay. Say hello to my little friend!"

"You wanna waste my time? Okay. I call my lawyer. He's the best lawyer in Miami. He's such a good lawyer, that by tomorrow morning, you gonna be working in Alaska. So dress warm."

Þessi maður er GUÐ! og já svo veit ég ekki hvort Woody Harrelson sem Larry Flynt flokkist sem "bad guy" ... en hann var amk umdeildur og massaflottur .... meira að segja þegar hann var í hjólastól

Nafnlaus sagði...

Nei
Það er klárlega rétt að það er Mojo Jojo í Power Puffs.... KLÁRLEGA.
Maggss

Mokki litli sagði...

Mér fannst alltaf mjög fyndið að vondi gæinn í 24 héti Habib. Habibi á arabísku er svona svipað og fólk í Ameríku kallar hvort annað "HONEY." Hann heitir því eigilega Ástarkrúsípungsi.