Var á leiðinni í Tube-ið áðan þegar að kona um fertugt vatt sér upp að mér og spurði mig að þessu. Að sjálfsögðu skellti ég mér með henni í drykk og við skemmtum okkur konunglega. Hmmm nei það er nú ekki líklegt. Ég gekk bara framhjá henni og hunsaði hana.
Annars er ekki mikið að frétta af mér. Alltaf nóg að gera í vinnunni og unnið flesta daga. Við höfum núna skipt hópnum niður í tvennt og fluttumst ég og Andrew lögfræðingurinn yfir á 3-ju hæðina. Með okkur eru tveir nýjir starfsmenn. Annar þeirra er aðstoðarlögfræðingur og hinn er Gummi. Strákur sem hefur verið að læra viðskiptafræði í Danmörku og verður lærlingur hjá okkur fram á sumar.
Bjarki og Hjördís voru í heimsókn í London yfir helgina en ég náði því miður ekki að eyða miklum tíma með þeim. Glataður gaur.
Á fimmtudaginn koma svo Stefán Bjarni og Halli Steinþórss. Þeir verða fimmtudag til sunnudags og er búist við mikilli bjórrigningu á þeim tíma. Þeir eru að fara til Prag þar sem Halli verður í nokkra mánuði en Stebbi ætlar að kíkja með honum í tvær vikur.
Ég fékk webcam í jólagjöf frá brósa, reyndar gaf hann öllum fjölskyldumeðlimum slíka enda erum við svo alþjóðleg fjölskylda. Skilst að mamma og Heiða systir hafi verið að nota þetta óspart. Ég drullaðist loksins til að láta græjuna upp fyrir nokkrum dögum! Helvítis leti er þetta alltaf hreint.
Er að fara á Chelsea vs. Barcelona 22.feb ásamt góðum hópi af valinkunnumandansmönnum. Það verður gaman. Förum 8 saman. Úff hvað ég hlakka til. Ronaldinho....work your magic!
Manchester United: Til hamingju með sigurinn í dag!
Á fóninum:
Arcade Fire
Madonna
Tool
Kanye West
Í bókinni:
Freakonomics - ágætis bók um skemmtilegar hagfræði pælingar, eins og "Why do drug dealers still live with their mothers?"
Straumhvörf - ekki svo góð bók um útrás íslenskra fyrirtækja. Helst aldrei við lesturinn þegar ég reyni að kíkja í hana
Í download-inu
5-ta sería af 24 - byrjar nokkuð þétt, búinn með 4 fyrstu þættina
OC 3 sería - alltaf gaman af vandamálum ríku krakkanna
Lost 2 sería - Æji ég veit það ekki, jújú þetta er alveg ágætt!
Aðrar pælingar:
Ég held ég færi iPod sounddock-ið upp í vinnu. Er hvort eð er alltaf þar.
17 ummæli:
Velkominn aftur á bloggið Hörður Lati Logi ;)
Kv, Maggss
veivei
kallinn bara búinn að læra að skrifa aftur ! :)
gaman að heyra í þér múslí! Ég myndi hala niður prison break þáttunum- Lost er leiðinlegt og man.united vann sem er gaman**
Allt annað er fínt- nú fer að koma dagur á Íslandi og þá get ég farið að fljúga aftur... svo kem ég til þín** ef þú verður skemmtilegur
og hvar er seria 4 af alias sem ad thu varst buin ad lofa mer? what does a girl have to do to get her fix....? ok, don't answer that!
gaman ad sja ad thu ert farin ad skrifa aftur. er keppni a milli ykkar Heidu hver er latari ad skrifa?
DAAAAAAAaaaaaaaaaaaaaaaaa....Heiða er í Alias department.... Get samt kannað málið. Man ekki hvort ég eigi hana.
HEY með prison break...sko það er alveg nóg fyrir mig að halda mér í 3 seríum skiluru......tek prison break þegar ég er búinn með þær.
Það geta ekki allir komið í afmæli!!!!!!!!
ok kannski var thad seria 2 af 24 sem thu lofadir mer, heilinn sma fried i augnablikinu....
Heyrðu, eftir að hafa talað við þig áðan og skemmt mér svona svakalega við að horfa á þig í leiðini langaði mig allt í einu svo svakalega í svona! Mundi þá allt í einu eftir því að kallinn hennar múttu fekk eina slíka í gjöf en gat ekki notað hana því hann er bara með einhverja fornaldar tölvu sem var ekki alveg tilbúin í svona tækni.... nú svo ég gróf hana upp, skellti henni í samband og er búin að vera að gretta mig hérna fyrir framan tölvuna í klukkutíma!!!! Snilld! Hahahahaha
Sæll Höddi minn! Gaman að sjá að þú átt þér stað í netheimum! Verst þykir mér að ég þurfti að hafa njósn af þvi eftir pervertískum leiðum í gegnum google! ;)
...gastu nú samt ekki aumkað þig yfir vesalings konuna og fengið þér einn samúðardrykk með henni?
cheeryo old chap!
Við fengum líka vefmyndavél í jólagjöf, hún verður sett upp fljótlega, við erum nefnilega loksins komin með almennilega nettengingu heim.
En Prison Break eru bestu þættir í langan tíma, ég myndi fara beint í það að ná í þá. Lost er samt alveg ágætt líka, loksins eitthvað að gerast þar.
kveðja frá Sverige
Gudrun
Forgive me father for I have sinned. It's been almost A MONTH since my last blog...
aetladi einmitt ad kommenta meda thad: thid systkinin erud ordin frekar lot i thessu....eda synir thetta manni ekki ad thid erud very busy? kemur thu ekki a thorrablotid a laugardaginn?
víííííí....... ÉG ER Á LEIÐINNI!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1
Hey! Hvernig var svo á leiknum? Post Match Report hérna...
Iss, hann veit voða lítið um hvernig var á leiknum..... eiginlega ekki neitt!
I am able to make link exchange with HIGH pr pages on related keywords like [url=http://www.usainstantpayday.com]bad credit loans[/url] and other financial keywords.
My web page is www.usainstantpayday.com
If your page is important contact me.
please only good pages, wih PR>2 and related to financial keywords
Thanks
Teabraime
top [url=http://www.001casino.com/]free casino[/url] brake the latest [url=http://www.casinolasvegass.com/]las vegas casino[/url] autonomous no consign perk at the leading [url=http://www.baywatchcasino.com/]casino games
[/url].
We stumbled over here by a different web page and thought I might check things out.
I like what I see so now i am following you. Look forward to going over your
web page repeatedly.
My weblog ... Altgold verkaufen
Skrifa ummæli