Jæja. Nú er það orðið staðfest hvenær ég kem á klakann yfir jólin. Því hef ég ákveðið að boða til þessa blaðamannafundar. Ég veit að það brenna margar spurningar á vörum ykkar en ég vil vinsamlegast biðja ykkur að vera róleg og leyfa mér að lesa upp eftirfarandi yfirlýsingu:
"Ég, Hörður Logi Hafsteinsson kt. 261182-xxxx, mun koma til Íslands þann 21. desember með kvöldflugi Icelandair. Blómvendir eru vinsamlegast afþakkaðir en allar aðrar gjafir verða þegnar með þökkum. Búist er við svaka fjöri yfir hátíðarnar eða allt þangað til að ég flýg aftur til Lundaheima þann 3.janúar næst komandi. Þá er gert ráð fyrir að Ísland falli aftur í dvala sinn."
Eru einhverjar spurningar?
Allavegana. Nóg hefur verið að gerast í lífi lundans. Nokkur fyrirtæki hafa verið keypt, nokkrum klukkustundum eytt á vinnustað og örfáum klukkustundum eitt á börum og öðrum siðlausum stöðum.
Ég get hér með staðfest að Mojito er besti svaladrykkur sem ég fæ, mexíkanskur matur er sá besti í heimi (já Serranos ég er búinn að finna stað sem tekur þig í Mexíkanan) og Manchester United er skítalið sem er í mikilli lægð.
Ég og Andras vinnufélagi minn settum okkur það markmið að finna góðan mexíkóskan stað í Covent Garden um daginn. Því ákvaðum við að sigta tvo út á netinu og fara svo og eyða einni kvöldstund í "taste-out" á báðum stöðum. Cafe Pacifico og La Perla. Cafe Pacifico hafði vinninginn og hef ég farið tvisvar eftir þetta að fá mér að borða þar. Ég mæli með Mojito-unum þeirra, Pacifico bjórnum og svo Burrito Especial!
Lagið sem ég get ekki hætt að hlusta á þessa dagana er Hung Up með Madonnu. Afhverju? jú af því að mig langar að dilla rassinum mínum þegar ég heyri það. Góð útskýring þar á ferð. Gimme gimme gimme a man after midnight.......wait a minute! :-
Ég fékk um daginn sendingu frá Sigrúnu, download nördinu mínu á Íslandi með nýjasta nýtt af OC og Lost. Ég verð nú bara að segja alveg eins og er.....ég er hoooooooked á þessum tveimur seríum. Stundum eru þó helvíti mikil GÖT í plottinu í Lost en ég læt það nú ekki á mig fá. Mér finn OC vera soldið eins og Coldplay. Algert easy listening, bara góð melódía en engar djúpar pælingar bak við þetta allt saman. Svínvirkar fyrir vikið.
Lofa að fara bæta mig í bloggi.
Ég er lifebranded Criminal
8 ummæli:
Gunni minn....þú veist að það er löööööööngu búið að ákveða að áramótapartýið verður heima hjá ykkur!!!!!
damn ég ætlaði einmitt að gefa þér blómvönd í jólagjöf- Hörður Logi Hafsteinsson er akkúrat maðurinn til að muna að vökva blómin** kannski ef þau anga eins og smákökur... nei þú myndir bara borða þau
Sem betur fer ertu búinn að fatta Mojito og sem betur fer ertu að fatta að ManUtd er skítalið ;-) í augnablikinu. Þú getur haldið með Liverpool á meðan!
Annars er ég alltaf að leita að afsökun til að draga konuna til Lundúna.... kannski að Chelsea leikur og matur á Cafe Pacifico sé málið (fyrir utan verslunarferð á Oxford street).
Kv.
Jónsi (a.k.a. lundaveiðimaðurinn)
sorry med brunch sl sunnudag... hvenaer a madur ad kynna ther fyrir Libonskum mat sem er enntha betri en Mexikoskur matur. er thad ekki deit midway between my place and yours....Maroush Vere Street.
Helga: Jújú ég skal alveg taka við blómvendi ef smákökur fylgja líka! :) En kommentið með að vökva blómin er satt. Báðar plönturnar sem við Regina keyptum í íbúðina okkar hérna eru DAUÐ!
Jónsi: Er með númer hjá gaur sem sérhæfir sig í að redda miðum. Endilega seldu konunni þetta og drífðu þig í Lundaheima!
Inga: No prob með brunch. Verðum í bandi í vikunni og skellum okkur á einn líbana!
Held ég sleppi Mojito næst þegar ég kem í heimsókn, en já get tekið undir að maturinn á Cafe Pacifico er tær snilld. Gaman að hitta þig síðustu helgi og hlakka til að sjá þig þegar þú verður á klakanum.
kv. Lísa
Cafe Pacifico ... da pleis tú bí if U vantú ít viþþ mí
hlakka til að sjá þig á morgun mongó**
Skrifa ummæli