fimmtudagur, október 27, 2005

Þetta er ný bloggfærsla

Ble ble

Er ekki kominn tími til að BLOGGA....Er ekki kominn tími til að BLOGGA? Blogga BloGGa BLOGGA......sá sem veit hvaða lag þetta er (tja með einhverju öðru orði en BLOGGA) vinsamlegast kommenti í kommentakerfinu!

Mikið hefur samt verið að gerast hjá mér eftir Íslandsförina sem heppnaðist með einsdæmum vel....að nokkrum atriðum undanskyldum. En að sjálfsögðu vildi ég að ég hefði náð að hitta fleira fólk og það fólk sem ég hitt oftar. Það verður þó að bíða fram að jólum. Hitti ykkur 24.des kl.18.00...it´s a date! :)

Vinnan er í gangi sem aldrei fyrr... en er að sama skapi alveg svakalega skemmtileg. Bloomberg er alltaf að verða meira og meira greiningartæki í mínum augum....ætla kannski ekki að fara út í það hér þar sem 1% lesenda eða minna (örugglega minna) þar af leiðandi ENGINN mun hafa gaman af þeirri umræðu.

Breskt sjónvarp er líklega leiðinlegra en íslenskt....FACT! Hef 5 stöðvar sem eru svona grunnpakki og er alvarlega farinn að íhuga að öppgreida í SKY Sports&Movies. Reyndar fær mar of mikið þá fyrir minna en stöð 2 kostar á mánuði ein og sér. En það er oft sem mar kemur heim og langar bara að leggjast upp í sófa og tjilla þangað til mar sofnar og þá vantar mig þetta. Ég tala nú ekki um þegar mig langar að horfa á enska boltann og sleppa þá við að fara á þessa pöbba þar sem allir reykja eins og þeim væri borgað fyrir það plús það að þeir væru human strompar og það væri arineldur í gangi inni í þeim svona í kringum mjaðmirnar.

Á fimmtudaginn síðasta (19 Oct held ég) skelltum við okkur nokkur úr vinnunni á opnun á nýrri búð í Convent Garden. Fyrirtækið hélt svaka partý eftir á í vöruskemmu fyrir 600 manns. Það var mjög gaman og alveg magnað hreint að ef maður kíkir eitthvað svona út með hópi af fólki þá hittiru svona 10 nýjar manneskjur í þeim hópi að minnsta kosti. En það þýðir að sjálfsögðu ekki að mar sakni ekki fólksins heima. En það er samt gott að sjá hvað það er auðvelt að kynnast mikið af nýju fólki hérna.

Yfir helgina voru svo Óli Johnson og Sigrún BETRI helmingur hans..hehehe... í heimsókn í borg Lundands. Við kíktum út að borða á skemmtilegan ítalskan stað (held að hann hafi verið ítalskur allavegana). Ég og Óli skelltum okkur í grillaðan lax en Sigrún í pasta í humarsósu. Vorum öll sammála um að rétturinn hennar Sigrúnar fékk vinninginn!!! Humarinn bara klikkar ekki...FACT!!!!

Sunnudeginum var svo eytt í verslunarleiðangri með Óla....fékk svo spurnir af því seinna að Ólafur Haukur Johnson ætlar aldrei aftur í verslunarferð með henni Sigrúnu! Óli minn....hún er nú ekkert verri en þú. Þú keyptir þér þrjá linguafóna!!! Beginners Chinese, France og Spanish! AAAAAAAAAAAAAAaaaaaaaaaaaaaaaasssssss you're gonna study that! Takk fyrir komuna! :)

Lundinn ófleygi hefur nú ákveðið að breyta ferðavenjum sínum í vinnuna. Ég áttaði mig nefnilega á því að með því að taka tube-ið á morgnanna get ég sofið allt að 10 mínútum lengur! Já gott fólk...það munar sko um 10 mínútur! Það er samt alveg ennþá æðislegra að fylgjast með fólkinu í tube-inu heldur en í strætóinum því ég tek tube-ið á Vauxhall. Til að komast í vinnuna fer ég út á Green Park. Þarna á milli eru tvær stöðvar, annars vegar Pimlico og hins vegar Victoria. Á Vauxhall þegar ég hoppa um borð er ekkert svo mikið af fólki, reyndar nær því sem klukkan er níu getur mar lent í röð upp að stiganum niður í tube-ið, svo á næstu stöð koma ekkert svaka margir um borð en á Victoriu mætti halda að um væri að ræða hóp af fólki sem hafi ekki fengið að borða í 4 ár og einhver væri að henda brauðmylsnu á gólfið um borð í lestinni. Þvílíkur æsingur að komast um borð. Síðasta fólkið sem kemst um borð þarf svo alltaf að setja hausinn til hliðar svo hurðinn geti lokast (tube-ið er shape-að nokkuð líkt flugvélarbúk). Allavegana, hef alltaf jafn gaman af því hvað fólk þarf að standa þétt saman því fólk verður svo vandræðalegt. Don't get me wrong....ég HATA að vera í þrengslum og sér í lagi þar sem ég er Icelandic Polar Bear þá er það ennþá verra, þá er líka gott að vera með iPod-inn sinn og með Diktuna sína alveg í botni. En maður sér samt alveg hvað öll karldýr eru alveg eins. Karlmaður og kona standa mjög þétt saman. Vísa bæði í átt að hvort öðru....hvert vísa augun á karlmanninum ...tja... 95% af tímanu....ég þarf ekki að mála þetta fyrir ykkur! Svo er það líka vana tube fólkið sem tekur það að sér að skipuleggja allt inni í tube-inu. Kallar upphátt alveg yfir alla....EXCUSE ME, WOULD YOU MIND MOVING FURTHER INTO THE TRAIN....þá er það sko að tala um gangveginn milli sætanna! AHA...eruði ekki alveg að sjá þetta fyrir ykkur?

Hvernig ætli það sé samt að vera starfsmaður þarna??? Jesús, í þessu ógeðslega lofti allan daginn. Einhver laumaði því að mér að ef þú prófar að snýta þér strax eftir að þú ert búinn að vera þarna niðri....ættiru að sjá hátt hlutfall af svörtu hori! Now that's a must try thing...right?

Allavegana....pabbi á afmæli á mánudaginn....enda er halloween þá. Ákvað fyrir tveimur mánuðum hvað ég ætlaði að gefa honum. Eins gott að hann eigi þetta ekki!!!!!

Í næstu viku á ég svo von á mikið af fólki. Tommi Aðalsteins kemur í byrjun næstu viku, svo og topp tíu Dóri, Gunnar Berg. Svo koma Zqli og Jón Bjarni á miðvikudaginn. ALLT AÐ GERAST! Ég Gunni Berg (sem er by the way að koma í þriðiju heimsóknina, já takið þetta til ykkar sem hafið ekki ennþá komið!!!!...ok ok kannski er hann hérna eitthvað vinnutengt...en það skittir ekki!) Zqli og JB erum að fara upp til Manchester á laugardeginum til að fara á Man Utd vs. Chelsea á sunnudeginum. Chelsea tapaði í gær fyrir Charlton (reyndar í vító) þannig að mar vonar að þeir séu að fara missa flugið aðeins!!!!!!!

Svo á ég afmæli 26.nóvember og byrja að taka við afmælisgjöfum í byrjun næstu viku.....takk fyrir og góða nótt!

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

"Er ekki tími(nn) tilkominn að tengja...."

"Tengja" með Skriðjöklum!

HLH-flokkurinn sagði...

Já mér finnst að ég eigi bara afmæli allt árið. Tek við gjöfum allan ársins hring! :)

Haffi....það er rétt ég var að klikka textann sjálfur...skita!!!

Guðrún sagði...

iss áfram chelsea ;)
p.s. ég er að reyna að fá Styrmir til að taka mig með í næstu London freð....tralalala :)

Nafnlaus sagði...

Segi það áfram Celsea :) verður samt súrt að vera manchester megin.... en þeir bláu eiga eftir að rústa þessum leik.....

Nafnlaus sagði...

Eyddi nóttinni með pabba þínum (dreymdi hann í nótt). Það var skrýtinn draumur, ég og kvensjúkdómalæknirinn á rúntinum. Trúi því bara vel að hann hafi fæðst á halloween eftir þessar draumfarir.

HLH-flokkurinn sagði...

HAHAHAHAHAHA.....þetta er mest sick komment sem ég hef lesið! HAHAHAHA

Nafnlaus sagði...

THAT'S TOO MUCH INFORMATION

Nafnlaus sagði...

Það er aldeilis alltaf upp á þér typpið. Ég ætla bara rétt að vona að ég felist undir skilgreiningunnni "mikið af fólki" þó ég hafi ekki verið talin upp sem slík. Pínu sár.
Sjáumst síðar í vikunni í don lon!
Hilsen fra Århus,
fraulein.

HLH-flokkurinn sagði...

Kræst....hvernig get ég munað allt. Svo langt síðan þú lést mig vita að þú værir að koma hingað! :)

For the RECORD....Fanney Björg...Fraulein fra Aarhus er að koma til London!!!! :)